Advertisement
Hefur þú áhuga á menntun og námsárangri barnsins þíns? 📚Garðabær býður foreldrum og forráðafólki grunnskólabarna í bænum á opinn fund um skólamál þann 7. október klukkan 19:30 í Miðgarði, 2. hæð. 💬
Á fundinum verða menntamálin til umfjöllunar. ✏️
👉 Anna Kristín Sigurðardóttir, prófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, fer yfir niðurstöður PISA 2025-könnunarinnar og fjallar um hvaða lærdóm er hægt að draga af þeim.
👉 Ásta Sigríður Fjeldsted forstjóri Festi heldur áhugavert erindi um nám og uppvaxtarár sem undirbúning fyrir framtíðina og atvinnulífið.
Við rýnum í námsárangur grunnskólabarna í Garðabæ og vörpum fram hinum ýmsu spurningum um skólamál. Hvað gengur vel? Hvað mætti betur fara? Hvaða áskoranir og tækifæri blasa við okkur? Við viljum heyra frá ykkur!💬
Við hvetjum foreldra grunnskólabarna í Garðabæ til að láta sjá sig á fundinum, hlýða á fyrirlestra og taka þátt í samtali um menntun og framtíð barnanna okkar.
Advertisement
Event venue
Miðgarður, Vetrarbraut 30, 210 Garðabær, Ísland, Kopavogur, Iceland
Tickets