#StayHappening
Sun Oct 11 2026 at 04:00 pm to 05:30 pm UTC+00:00

Dvořák, Dvořák

  • Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre · Reykjav
Kammersveit Reykjav\u00edkur Publisher / Host Kammersveit Reykjavíkur
Share
Dvo\u0159\u00e1k, Dvo\u0159\u00e1k
Advertisement
Fyrstu tónleikar Kammersveitar Reykjavíkur starfsárið 2026-2027 eru helgaðir tónlist Antonín Dvořáks. Hann er eitt ástsælasta tónskáld Tékklands fyrr og síðar. Kammersveitin leikur á tónleikunum tvö af þekktustu kammerverkum Dvořáks; strengjasextettinn í A-dúr op. 48 og Serenöðu í d-moll fyrir blásara, selló og kontrabassa op. 44, en bæði þessi verk eru samin árið 1878. Um svipað leyti samdi hann hina Slavnesku dansa sem síðar slógu í gegn og gerðu Dvořák að heimsfrægu tónskáldi nánast á augabragði.
Dvořák, Dvořák í Norðurljósum Hörpu sunnudaginn 11. október kl. 16.
Miðasala á harpa.is: https://www.harpa.is/vidburdir/22379
Kammersveit Reykjavíkur var stofnuð 1974 í því augnamiði að gefa áheyrendum kost á reglulegum tónleikum með kammertónlist og um leið hljóðfæraleikurunum tækifæri til að glíma við áhugaverð verkefni. Óhætt er að fullyrða að Kammersveit Reykjavíkur hafi tekist ætlunarverk sitt því hún hefur átt fastan sess í tónlistarlífi höfuðborgarinnar æ síðan. Sveitin hefur frumflutt fjölda íslenskra og erlendra verka sem samin hafa verið fyrir hana og ennfremur staðið fyrir íslenskum frumflutningi þekktra erlendra verka. Kammersveit Reykjavíkur hefur í gegnum tíðina einnig lagt áherslu á hljóðritun og útgáfu íslenskra tónverka. Ennfremur hefur sveitin gefið út geisladiska með klassískum verkum m.a. Brandenborgarkonserta Bachs, en fyrir þá útgáfu hlaut hún Íslensku tónlistarverðlaunin 2003. Kammersveit Reykjavíkur hefur tvívegis verið tilnefnd til Tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs; árin 2005 og 2015. Platan Windbells kom út á vegum Sono Luminus árið 2022, en þar leikur Kammersveitin verk eftir Huga Guðmundsson. Hún var tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna sem plata ársins og sveitin sem flytjandi ársins.
Advertisement

Event venue

Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre, Austurbakki 2,Reykjavík, Iceland, Reykjav

Tickets
Concerts, fests, parties, meetups — all the happenings, one place.

Ask AI if this event suits you

Keep the plans coming

More events