Advertisement
Í leit að mýkt og hlýju í gegnum tól sem í eðli sínu eru köld og harðneskjuleg tekur Reykjavík Tool Orchestra iðnaðarverkfæri í fangið með það að markmiði að draga fram fínlegri hliðar þeirra. Reykjavík Tool Orchestra er kammersveit sem samanstendur af 8 borvélum, 8 sögum, 2 steypuhrærivélum, 2 juðurum og 4 hitablásurum. Hljómsveitarstjóri er Kristinn Arnar Sigurðsson, einnig þekktur sem krassasig.
…uns eldurinn blossar
Með rafgítar, sustain-pedölum, víðóma bergmáli, ómun og fyrirfram hljóðrituðu efni á segulbandi leiðir tónlistarmaðurinn hlustendur í heillandi ferðalag um dáleiðandi kyrrð, angurværa fegurð og knýjandi hrynjandi.
Á leiðinni hljómar Dream eftir John Cage, íhugult verk frá árinu 1948, hér útsett fyrir rafgítar og sustain-pedal. Þaðan víkkar hljóðheimurinn í verki Eve Beglarian, ...until it blazes (2001). Orðin „Ég hef kastað eldi yfir heiminn, og sjá, ég gæti hans uns hann blossar upp“ mynda umgjörð verksins, þar sem víðóma bergmálsáhrif umbreyta einföldu síendurteknu stefi í vegg tóna og hrynjandi.
Milli þessara samtímaverka lítur tónlistarmaðurinn um öxl til Flow, My Tears eftir John Dowland og minnist þess að 400 ár eru liðin frá andláti tónskáldsins. Verkið var upphaflega samið árið 1595, en auðugur og angurvær hljómavefur þess fellur einstaklega vel að rafgítarnum og hljómar bæði nútímalega og íhugult.
Flutningurinn nær hámarki í meistaraverki Steve Reich, Electric Counterpoint, og heiðrar þannig þennan risa naumhyggjunnar í aðdraganda níræðisafmælis hans í október. Verkið var samið fyrir Pat Metheny árið 1987 og myndar fullkomið samtal milli lifandi gítarleiks og fyrirfram hljóðritaðra gítarradda, þar sem mannlegur hjartsláttur slær undir nákvæmum hrynjandanum.
-----
Reykjavík Tool Orchestra is a chamber orchestra that explores the hidden musical qualities of industrial tools. Consisting of cordless drills, saws, concrete mixers, and heat guns, the ensemble transforms familiar tools of construction into musical instruments. Through an exploration of rhythm, pitch, and texture, the orchestra seeks to discover softness, warmth, and tenderness in objects typically associated with noise, force, and hard labour. The orchestra is founded and conducted by artist Kristinn Arnar Sigurðsson, also known as krassasig.
…Until it blazes
Using an electric guitar, sustain pedals, stereo delays, reverbs and pre-recorded tape, the musician creates an immersive path through hypnotic stillness, melancholic beauty, and driving rhythm.
The journey includes John Cage’s Dream, a meditative piece written in 1948 arranged for electric guitar and sustain pedal. From there, the sound expands into Eve Beglarian’s ...until it blazes (2001). Framed by the words, "I have cast fire upon the world, and watch, I am guarding it until it blazes," the piece uses stereo delay to transform a simple “ostinato” into wall of tones and rythms.
In between these contemporary works, the musician looks back at John Dowland’s Flow, My Tears to mark 400 years since the composer’s death. Originally written in 1595, its rich, melancholic harmonies adapt effortlessly to the electric guitar, sounding extremely modern and reflective.
The performance culminates in Steve Reich’s masterpiece, Electric Counterpoint, honoring the minimalist giant ahead of his 90th birthday this October. Written for Pat Metheny in 1987, the piece is a perfect dialogue between live guitar and pre-recorded guitar tracks, finding a pulsing human heart within precise rhythms.
Advertisement
Event venue
Ásmundarsalur, Reykjav, Iceland
Tickets