#StayHappening
Sun, 11 Oct, 2026 at 03:00 pm UTC+00:00

STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands

  • Austurvöllur, Reykjavík · Reykjav
V\u00c1 - F\u00e9lag um vernd fjar\u00f0ar Publisher / Host VÁ - Félag um vernd fjarðar
Share
STOPP - verjum Sey\u00f0isfj\u00f6r\u00f0 og n\u00e1tt\u00faru \u00cdslands 🛑 STOPP! Verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands
Austurvöllur, sunnudaginn 11. október kl. 15:00
Samhliða verða aðgerðir á Seyðisfirði.
✋Nú segjum við STOPP!
Við erum orðin þreytt á því að náttúru Íslands og almannahagsmunum sé fórnað fyrir fjárhagslega sérhagsmuni. Þreytt á stjórnsýslufúski í kerfum sem almenningur á að geta treyst. Og þreytt á því að fólk þurfi að eyða ævinni í að verja firðina, árnar, fjöllin og heimabyggðina fyrir áformum sem það bað aldrei um.
Þann 11. september voru gefin út leyfi fyrir 10.000 tonna sjókvíaeldi í Seyðisfirði, þrátt fyrir sex ára baráttu og skýran vilja samfélagsins. Samkvæmt skoðanakönnun eru 75% Seyðfirðinga andvíg áformunum. Enn eina ferðina eigum við að afhenda aðgang að heilum firði til fyrirtækis í gríðarlegum rekstrar- og fjárhagsvanda, þar sem náttúrulegar og líffræðilegar aðstæður hafa ítrekað sett rekstrinum skorður. Við segjum stopp. Náttúran okkar og almenningur eiga ekki að vera leiksoppar í þessu fjárhættuspili.
Þetta er ekki bara saga Seyðisfjarðar. Þetta snýst um hvernig við viljum fara með landið okkar, lífríkið og villta laxinn. Um rétt samfélaga til að hafa áhrif á framtíð sína. Um hvort náttúruverðmæti Íslands eigi sífellt að víkja fyrir sérhagsmunum og skammtíma sjónarmiðum. Við viljum störf, fjárfestingu og öflug samfélög. En við höfnum því að framtíð landsbyggðarinnar þurfi að kosta eyðileggingu náttúrunnar. 11. október markar tímamót. Þá rennur út frestur okkar til að kæra leyfisveitingarnar. Við munum kæra. Og við munum aldrei samþykkja sjókvíaeldi í Seyðisfirði.
📢 Við boðum Hönnu Katrínu Friðriksson atvinnuvegaráðherra, Jóhann Pál Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, á Austurvöll. Þar afhendum við þeim undirskriftir þjóðarinnar gegn leyfisveitingum til sjókvíaeldis í Seyðisfirði. 13.022 höfðu skrifað undir þegar listanum var lokað árið 2024. Nú opnum við hann aftur og bjóðum fleirum að bæta nafni sínu við fyrir 11. október. Undirskriftirnar eru ekki bara nöfn á blaði. Að baki þeim stendur fólk sem ætlast til þess að stjórnmálamenn muni hvað þeir sögðu fyrir kosningar og fyrir hvern þeir voru kosnir til að vinna.
Landvernd, NASF, VÁ! Félag um vernd fjarðar og breiðfylking náttúruverndarsamtaka boða til mótmæla á Austurvelli og streymt verður frá aðgerðum á Seyðisfirði á sama tíma.
Náttúran getur ekki mætt sjálf á Austurvöll, en við getum það. Og nú þurfum við að fjölmenna. Staðsetning á Seyðisfirði auglýst á næstu dögum.
STOPP!
Verjum Seyðisfjörð og íslenska náttúru.
Mætum. Deilum. Sjáumst ❤️
Undirskriftalistinn sem hefur verið endurvakinn er aðgengilegur hér: https://island.is/undirskriftalistar/dd33bc74-08e7-454f-ba5f-62cb872c3cc9

Event venue

Austurvöllur, Reykjavík, E1, Vonarstræti, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjav, Iceland

Tickets
Concerts, fests, parties, meetups — all the happenings, one place.

Ask AI if this event suits you

Keep the plans coming

More events

Sir Bryn Terfel

Sat, 10 Oct at 08:00 pm Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre