#StayHappening
Mon Oct 12 2026 at 08:00 pm to 11:00 pm UTC+00:00

Þrjár systur // Anton Tsjekhov // Leikaranám LHÍ

  • Sviðslistadeild Listaháskóla Íslands · Reykjav
Svi\u00f0slistadeild Listah\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands Publisher / Host Sviðslistadeild Listaháskóla Íslands
Share
\u00derj\u00e1r systur \/\/ Anton Tsjekhov \/\/ Leikaran\u00e1m LH\u00cd
Advertisement
Þriðja árs leikaranemar LHÍ setja upp Þrjár systur eftir
rússneska leikskáldið Anton Tsjekhov.
Frumsýnt mánudaginn 12. október 2026 í LHÍ Laugarnesi.
Uppsetningin er hluti af leikaranámi Sviðslistadeildar LHÍ,
innan áfangans Leiktúlkun V.
Þrjár systur var frumsýnt árið 1901 og er eitt þekktasta
leikrit Anton Tsjekhovs. Verkið fjallar um systurnar Olgu, Maríu og Irínu og bróður þeirra Andrei sem búa í rússneskum smábæ og þrá að komast aftur til Moskvu. Undir yfirborði hversdagslegs lífs takast persónurnar á við vonir, ást, vonbrigði, einsemd og þá tilfinningu að lífið sem þær dreymir um sé sífellt að færast fjær.
Nemendur vinna undir handleiðslu Agnars Jóns Egilssonar, dósents við LHÍ og fagstjóra leikarabrautar. Leikmynd, búningar og öll umgjörð sýningarinnar er í höndum leikhópsins.
Hvenær:
Frumsýning - mánudaginn 12.10.26 - kl: 20.00
2. sýning - þriðjudaginn 13.10.26 - kl: 20.00
3. sýning - miðvikudaginn 14.10.26 - kl: 20.00
4. sýning - fimmtudaginn 15.10.26 - kl: 20.00
(Sýningin er 3 klukkustundir með einu hléi)
Hvar:
Stóra Black Box, LHÍ Laugarnes.
Laugarnesvegur 91, 105 Reykjavík.
Gengið er inn fyrir neðan hús, frá steypta bílastæðinu. Inngangur er nær Sæbrautinni.
Persónur og leikendur:
Írena: Sigríður Ragnarsdóttir
Masha: Gúa Margrét Bjarnadóttir
Olga: Rán Ragnarsdóttir
Andrei: Freysteinn Sverrisson
Tsjebútykin: Óskar Snorri Óskarsson
Kúlygín: Baldur Björnsson
Túzenbach: Ágúst Örn Börgesson Wigum
Vershínín: Kolbeinn Sveinsson
Saljoní: Baldur Björnsson
Anfísa: Freysteinn Sverrisson, Ágúst Örn Börgesson Wigum og
Kolbeinn Sveinsson
Skortsov einvígisvottur: Rán Ragnarsdóttir
Aðrir aðstandendur:
Verkefnastjórn, leiktúlkunarkennsla og leikstjórn: Agnar Jón
Egilsson
Aðstoð með hreyfingar: Vala Ómarsdóttir
Aðstoð með raddvinnu: Edda Rún Ólafsdóttir
Aðstoð við tækni: María Jóngerð Gunnlaugsdóttir
Tæknikeyrsla, sýningarstjórn og sviðstjórn: Nemendur í sviðshöfundanámi LHÍ.
Advertisement

Event venue

Sviðslistadeild Listaháskóla Íslands, Laugarnesvegur 91, 105 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjav, Iceland

Tickets
Concerts, fests, parties, meetups — all the happenings, one place.

Ask AI if this event suits you

Keep the plans coming

More events