#StayHappening
Tue, 24 Nov, 2026 at 12:00 pm UTC+00:00

Þriðjudagsfyrirlestur: Tengsl Íslands og Þýskalands í skugga síðari heimstyrjaldar

  • Þjóðminjasafn Íslands/ National Museum of Iceland · Reykjav
\u00dej\u00f3\u00f0minjasafn \u00cdslands\/ National Museum of Iceland Publisher / Host Þjóðminjasafn Íslands/ National Museum of Iceland
Share
\u00deri\u00f0judagsfyrirlestur: Tengsl \u00cdslands og \u00de\u00fdskalands \u00ed skugga s\u00ed\u00f0ari heimstyrjaldar
Advertisement
Í hádeginu á þriðjudögum býður Þjóðminjasafn Íslands upp á viðburði af ýmsu tagi, svo sem bíósýningar, leiðsagnir, fyrirlestra og stutt málþing.
Þriðjudaginn 24. nóvember, kl. 12-12:45 mun Florian Jacob doktorsnemi í sagnfræði við Humboldt-háskólann í Berlín fyrirlestur um tengsl Íslands og Þýskalands í skugga síðari heimstyrjaldarinnar. Fyrirlesturinn fer fram á íslensku.
Í þessum hádegisfyrirlestri leyfir Florian okkur að skyggnast inn í rannsóknir sínar á hinu örlagaríka tímabili 1933–1945. Fjallað verður um söguleg samskipti landanna tveggja og spennandi heimildaleit í skjalasöfnum. Sérstök áhersla verður lögð á sögu þýska konsúlatsins á Íslandi og velt upp spurningum um leyndardóma fortíðarinnar, meðal annars út frá járnkassa úr konsúlatinu sem margir gestir Þjóðminjasafnsins hafa ef til vill tekið eftir á grunnsýningu safnsins.
Florian Jacob (f. 1995) er menntaður menntaskólakennari og sagnfræðingur og stundar nú doktorsnám við Humboldt-háskólann í Berlín. Doktorsverkefnið fjallar um íslensk-þýsk samskipti á tímum Þriðja ríkisins með aðaláherslu á samskipti ríkjanna á sviðum menningar- og utanríkismála.
Aðgöngumiði í safnið gildir á viðburðinn. Athugið að aðgöngumiði jafngildir árskorti og veitir aðgang á alla viðburði og sýningar á vegum safnsins í ár frá kaupum. Ókeypis er á sýningar og viðburði fyrir börn að 18 ára aldri.
-----
The National Museum of Iceland offers a variety of lunchtime events on Tuesdays, including film screenings, guided tours, lectures and short seminars.
On Tuesday, 24 November, from 12 to 12:45 pm, Florian Jacob, a PhD candidate in history at Humboldt University in Berlin, will give a lecture on relations between Iceland and Germany in the shadow of the Second World War.
In this lunchtime lecture, Florian will offer an insight into his research on the fateful period from 1933 to 1945. He will explore historical relations between the two countries and the fascinating search for sources in historical archives. Particular attention will be given to the history of the German Consulate in Iceland, raising questions about mysteries of the past, including those surrounding an iron chest from the consulate that many visitors may have noticed in the museum’s permanent exhibition.
Florian Jacob (1995) is a qualified secondary school teacher and historian, currently pursuing a PhD at Humboldt University in Berlin. His doctoral research focuses on Icelandic-German relations during the Third Reich, with particular emphasis on cultural and diplomatic relations between the two countries.
Please note that the lecture will be in Icelandic.
Museum admission includes access to the event. Please note that an admission ticket also serves as an annual pass, granting access to all museum exhibitions and events for one year from the date of purchase. Admission to exhibitions and events is free for children under 18.
Advertisement

Event venue

Þjóðminjasafn Íslands/ National Museum of Iceland, Suðurgata 41, 102 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjav, Iceland

Tickets
Concerts, fests, parties, meetups — all the happenings, one place.

Ask AI if this event suits you

Keep the plans coming

More events