Stund fyrir kyrrð, næringu og innri frið í aðdraganda jóla.
Síðustu sex ár hefur það verið falleg hefð hjá Yogahúsinu að bjóða upp á Jóga Nidra og tónheilun á Þorláksmessukvöld, þátttakendum að kostnaðarlausu.
Þetta er okkar litla framlag til heilsueflandi samfélags og leið til að minna á mikilvægi þess að hægja á sér, hlúa að eigin líðan og finna kyrrð í amstri aðventunnar.
Við vitum að jólin eru ekki öllum auðveld. Þau geta vakið upp ólíkar tilfinningar og fyrir marga fylgir þessum tíma álag, söknuður eða einmanaleiki. Þess vegna finnst okkur sérstaklega mikilvægt að skapa hlýlegt og öruggt rými þar sem allir eru velkomnir, nákvæmlega eins og þeir eru.
✨ Á Þorláksmessukvöld ætlum við að leggja jólaösina til hliðar og leyfa okkur að vera.
Í gegnum djúpa slökun Jóga Nidra, mjúka leiðslu og nærandi tóna gefum við líkama og huga tækifæri til að hvílast, sleppa takinu og finna innri ró.
Hér þarf ekkert að gera, engu að ná og engar væntingar að uppfylla.
Bara mæta, leggjast niður, anda og þiggja.
🤍 Þorláksmessa – 23. desember kl. 21:00
🤍 Staðsetning: Yogahúsið
🤍 Þátttaka: Að kostnaðarlausu
Við bjóðum þér hjartanlega velkomin í þessa fallegu samverustund.
Því stundum er fallegasta gjöfin sem við getum gefið okkur sjálfum að staldra við og leyfa okkur að hvílast.
Með hlýju og þakklæti.
Íris og kennarar Yogahússins.
Event venue
Lífsgæðasetur st.jó Hafnarfirði Suðurgata 41, 220, Suðurgata 41, 220 Hafnarfjarðarkaupstaður, Ísland, Hafnarfjörður, Iceland
Tickets