#StayHappening
Fri, 08 Jan, 2027 at 05:00 pm UTC+00:00

Amara nídra kennaranám

  • Helluhraun 18, 220 Hafnarfjörður, Iceland · Hafnarfjörður
Amarayoga Publisher / Host Amarayoga
Share
Amara n\u00eddra kennaran\u00e1m
Advertisement

Þetta námskeið er fyrir jógakennara og aðra fagaðila
​Jóga nídra er mögnuð aðferð til að hjálpa fólki við að ná djúpri slökun. Í þessu ástandi, milli svefns og vöku, er svo mögulegt að vinna með allskonar hluti sem geta verið að plaga fólk, svo sem streitu, óöryggi og ýmislegt annað, smærra og stærra. Þar fyrir utan eru tímarnir bara yndisleg slökun og góð leið til að hjálpa fólki við að ná góðum nætursvefni.
Það sem gerir jóga nídra námið í Amarayoga sérstakt er að í þessu námi skoðum við ekki eingöngu jóga nídra eins og það er kennt í dag, heldur skoðum við einnig hefðina sem aðferðin tengist, hið tantríska laya jóga. Við skoðum hugmyndafræðina og mismunandi aðferðir, og skoðum hvernig við getum nýtt okkur fornar hugmyndir um viskugyðjurnar tíu og orkuna sem hver þeirra færir okkur. Við fáum fræðslu um taugakerfi líkamans og skoðum hvernig við getum nýtt jóga nídra til að þjálfa líkamann í að gefa eftir. Það hjálpar okkur í gegnum eril daglegs lífs og getur hjálpar okkur til að sofna fyrr og sofa betur. Við lærum um það hvernig jóga nídra hjálpar okkur við að vinna á streitu og verkjum í líkamanum, vinna okkur í gegnum áföll, og einfaldlega að ná betri tengslum við okkur sjálf. Jóga nídra róar allt kerfið niður og við getum náð betri tökum á lífinu.
Nemendur spreyta sig á að semja sín eigin handrit og æfa sig í að leiða tíma.​​​
Athugið að hér eru ekki kenndar jógaæfingar (asana). Til að fá leyfi til að kenna fulla tíma með jógaæfingum er nauðsynlegt að klára 200 tíma jógakennaranám.
​
Skipulag:
9. janúar 2027 kl 10:00: Stuttur fundur á Zoom þar sem við kynnumst og förum yfir skipulag námsins. Kennsluvefurinn verður kynntur þar sem við höfum fyrirfram upptekna fyrirlestra og efni þeirra á PDF formi. Efnið í þessum pakka er kynning á jóga nídra, tilgangi jóga nídra, sögunni og uppsetningu tímanna. Þarna eru einnig upptökur af mismunandi jóga nídra tímum sem nemarnir æfa heima. Þessa fyrirlestra má hlusta á aftur og aftur meðan á náminu stendur.
Við hittumst svo að Helluhrauni 16-18:
16. - 17. janúar 2027
30. - 31. janúar 2027
13. - 14. febrúar 2027
​​
Kennt er kl 12:00 -18:00 á laugardögunum og kl 09:00-16:00 á sunnudögunum.
​Verð kr. 122.000.-​ og skal greitt við skráningu. Síðasti skráningardagur er miðvikudagurinn 6. janúar 2027. ATH að einungis verða teknir inn 12 nemar!
Skráning fer fram gegnum [email protected].
Þetta námskeið telst sem CE einingar hjá Yoga Alliance (60t) og er einnig hluti af 300 tíma framhaldsnámi Amarayoga.
​Kennari: Ásta María Þórarinsdóttir, E-RYT500.

​
Advertisement

Event venue

Helluhraun 18, 220 Hafnarfjörður, Iceland, Helluhraun 18, 220 Hafnarfjarðarkaupstaður, Ísland, Hafnarfjörður, Iceland

Tickets
Concerts, fests, parties, meetups — all the happenings, one place.

Discover more events by tag

Ask AI if this event suits you