Advertisement
Á þessum tónleikum koma fram Skaði Þórðardóttir, Þrumudætur og Sanju Shinju.Harpa, í samstarfi við Tónlistarborgina Reykjavík og Rás 2, stendur fyrir Upprásinni, tónleikaröð sem tileinkuð er grasrót íslenskrar tónlistar, þvert á tónlistarstefnur.
Upprásin fer nú fram fjórða árið í röð og munu samtals 27 hljómsveitir koma fram, þrjár á hverju tónleikakvöldi.
Tónleikaröðin er liður í því að framfylgja dagskrárstefnu Hörpu um bætt aðgengi grasrótar og ungs fólks í öllum tónlistargreinum og auka við fjölbreytni. Markmiðið er einnig að tónlistaráhugafólk geti gengið að því vísu að heyra fjölbreytta nýja íslenska tónlist, beint úr grasrót tónlistarlífsins, flutta við kjöraðstæður í tónlistarhúsi þjóðarinnar. Miðaverð er aðeins 2000 kr. en hægt er að leggja til hærri upphæð í miðasöluferlinu sem rennur beint til listafólksins.
**
Skaði Þórðardóttir flytur grúvað raf pönk sem kitlar danstaugar áhorfenda.
*
Þrumudætur er íslensk pönkhljómsveit en hana skipa Jara, Saga, Eva Dís og Eva Karín. Þær mæta til leiks með mikla stemmingu og æsing og tjá tilfinningar unglinga í gegnum tónlistina.
*
Sanju Shinju er fjölþjóðlegt tónlistarverkefni en bandið skipa Hiroki Kamoshida, Rikhardur H. Fridriksson, Sigurlaug Thorarensen, Masaya Ozaki, Sólrún Mjöll Kjartansdóttir, Yoshimoto Yuichi og Yulia Vasileva.
Hljómurinn spannar allt frá klassískum píanótónum og poppi yfir í japanskt popp, tilraunarokk, hip-hop og hávaða svo úr verður hrífandi óreiða, full af jákvæðri orku.
*****
This concert will feature Spouses, Brenninetla and ÞESAL.
Harpa, in collaboration with the Reykjavík Music City and Rás 2, is hosting Upprásin, a concert series dedicated to grassroots Icelandic music, across musical genres. Upprásin is now taking place for the fourth year in a row and a total of 27 bands will perform, three on each concert night.
Ticket prices are only 2000 kr. but it is possible to contribute a higher amount during the ticket sales process, which will go directly to the artists.
*
Skaði Þórðardóttir performs groove-driven electro-punk that is guaranteed to get audiences moving. Blending driving beats with punk attitude, her music is as danceable as it is electrifying.
*
Þrumudætur is an Icelandic punk band consisting of Jara, Saga, Eva Dís, and Eva Karín. They bring explosive energy and infectious enthusiasm to the stage, channeling the emotions, frustrations, and excitement of youth through their music.
*
Sanju Shinju is a multinational music project featuring Hiroki Kamoshida, Rikhardur H. Fridriksson, Sigurlaug Thorarensen, Masaya Ozaki, Sólrún Mjöll Kjartansdóttir, Yoshimoto Yuichi, and Yulia Vasileva. Their sound spans everything from classical piano and pop to J-pop, experimental rock, hip-hop, and noise, coming together in a captivating whirlwind of musical chaos bursting with positive energy.
Advertisement
Event venue
Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre, Austurbakki 2, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjav, Iceland
Tickets