Advertisement
Barbara Hannigan, aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Hugi Guðmundsson, staðartónskáld hljómsveitarinnar, taka hér höndum saman og frumflytja nýtt tónverk, Freyju, sem samið er í nánu samstarfi þeirra tveggja og kanadíska rithöfundarins Julie Salverson sem ritar texta verksins. Freyja sveiflast milli hins hversdagslega og goðsagnakennda. Innblástur verksins er hið merka lífshlaup Margrétar Benedictsson (1866–1956) sem fluttist 21 árs úr örbirgð íslenskra heimahaga til Kanada, þar sem hún varð síðar mikill baráttukona fyrir mannréttindum. Hún stofnaði m.a. tímaritið Freyju og var einstakt afl í baráttunni fyrir kosningarétti kvenna í Kanada. Verkið kannar einnig samþættingu þeirra tveggja hlutverka sem Hannigan fer með í verkinu; sem hljómsveitarstjóri og einsöngvari.Tónleikunum lýkur svo með hinni kraftmiklu og líflegu sinfóníu nr. 2 eftir Ludwig van Beethoven. Þrátt fyrir að vitneskjan um óumflýjanlegt heyrnarleysi hafi litað líf hans dökkum litum um þetta leyti er sinfónían engu að síður full af gáska og stríðni. Hún er eitt stórt bros sem fylgir okkur vonandi út í milt vorkvöldið.
Efnisskrá
Hugi Guðmundsson: Freyja – frumflutningur
- Texti Julie Salverson
Ludwig van Beethoven: Sinfónía nr. 2
Hljómsveitarstjóri og sópran
Barbara Hannigan
//
Barbara Hannigan, principal conductor of the Iceland Symphony Orchestra, and Hugi Guðmundsson, the Orchestra's composer in residence, join forces here to premiere a new piece, Freyja, which was written in close collaboration between the two of them and Canadian author Julie Salverson, who wrote the text for the piece. Freyja oscillates between the everyday and the mythical. The work is inspired by the remarkable life of Margrét Benedictsson (1866–1956), who at the age of 21 moved from the poverty of her Icelandic homeland to Canada, where she later became a great activist for human rights. She founded, amongst other things, the magazine Freyja and was a unique force in the fight for women's suffrage in Canada.
The piece also explores the integration of the two roles that Hannigan plays in the piece, both as conductor and soloist. The concert concludes with the energetic and lively Symphony No. 2 by Ludwig van Beethoven. Although the knowledge of his inevitable deafness had coloured his life in dark colours around this time, the symphony is nonetheless full of humour and teasing. It is one big smile that will hopefully follow us into the mild spring evening.
Program
Hugi Guðmundsson: Freyja – World Premiere
- Text by Julie Salverson
Ludwig van Beethoven: Symphony no. 2
Conductor and soprano
Barbara Hannigan
Advertisement
Event venue
Eldborg, Harpa, Austurbakka 2, Austurbakki 2,Reykjavík, Iceland, Reykjav
Tickets