Advertisement
Í tengslum við leiðtogafundinn í Höfða höfðu Samtök herstöðvaandstæðinga hraðar hendur og buðu Joan Baez til Íslands þar sem hún kom fram á friðarsamkomu í Gamla bíói. Um kvöldið hélt hún svo einkatónleika á sama stað. Ríkissjónvarpið tók þá skyndiákvörðun að sýna frá tónleikunum og var þeirra því hvergi getið í dagskrárauglýsingum. Tónleikarnir hafa aldrei verið sýndir aftur, eftir því sem næst verður komist: fyrr en nú.Upptakan verður leikin í Friðarhúsi og jafnframt munu þau Ingibjörg Haraldsdóttir og Árni Hjartarson segja frá aðdraganda þeirra og í hverju íslenskir friðarsinnar voru að snúast meðan á leiðtogafundinum stóð.
Í Friðarhúsi stendur jafnframt uppi veggspjaldasýning tengd baráttunni gegn kjarnorkuvopnum á níunda áratugnum.
Advertisement
Event venue
Njálsgata 87, 101 Reykjavík, Iceland, Njálsgata 87, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets