Advertisement
Við kynnum nýjan hóp fyrir mæður og aðra kvenkyns aðstandendur fólks í sjálfsvígshættu 💛👉Fyrsti fundur hefst á stuttu fræðsluerindi um seiglu.
Þetta er stuðningshópur fyrir mæður, dætur, systur og maka fólks í sjálfsvígshættu, fólks sem hefur gert tilraun til sjálfsvígs, er með sjálfsvígshugsanir eða er talið líklegt til að gera tilraun.
Markmið hópsins er að vera jafningjastuðningur þar sem konur deila reynslu og treysta hver annarri fyrir hugsunum og líðan í aðstæðum sem virðast oft óraunverulegar og óyfirstíganlegar. Innan hópsins er öruggt rými til þess að deila reynslu sinni og upplifun með öðrum sem skilja af eigin raun, deila bjargráðum, læra hver af annarri og fá stuðning frá jafningjum sem skilja og styðja hver aðra. Einnig er faglegur stuðningur á staðnum.
Þetta eru styrkjandi og innihaldsríkir fundir undir handleiðslu Lellu Erludóttur sem er PCC vottaður markþjálfi og með grunn í sálfræði en er einnig aðstandandi einstaklings í langvarandi sjálfsvígshættu. Dóra Guðlaug Árnadóttir félagsráðgjafi Píeta leiðir hópinn með henni.
Hópurinn hittist þriðja miðvikudag í mánuði kl.17-18:30 á Sjónarhóli, Háaleitisbraut 13, 108 Reykjavík í sal á jarðhæð, til vinstri.
Dagskrá vor 2026:
15. apríl
13. maí
Advertisement
Event Venue
Háaleitisbraut 13, 108 Reykjavíkurborg, Ísland, Háaleitisbraut 13, 108 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.











