Advertisement
Morgunráðstefna ætluð öllum áhugasömum um hönnun skólabygginga. Hádegisverður í Sögu og skoðunarferð einnig í boði.Skráning: Til föstudags 10. apríl 2026, sjá hér
https://forms.office.com/Pages/ResponsePage.aspx?id=Dl_6CRghVkaFKWd-2P2-eNuFSHDD2ihLt-FzLinJuIxUNk5TOFJZNEZVQkRTSkFGNFdHR1gyUVJSUi4u
Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin á fæti eða neti á ráðstefnu ætlaða öllum sem láta sig hönnun og rannsóknir á námsumhverfi í skólabyggingum varða, þar á meðal rannsakendum, fulltrúum ríkis og sveitarfélaga, stjórnendum í menntakerfi og skólum, kennurum, arkitektum og hönnuðum.
Ráðstefnan er liður í norræna rannsóknar- og þróunarverkefninu LED Nordic um áhrif hönnunar á námsumhverfi á kennslu, nám og velferð frá norrænu sjónarhorni eða LED Nordic - Impact of Learning Environment Design on Teaching, Learning, and Wellbeing: A Nordic Perspective, Nordplus Horizontal-verkefni 2024 til 2026 byggt á þátttöku rannsakenda, sveitarfélaga og framleiðenda frá Norðurlöndunum fimm.
Markmið með ráðstefnunni er styrkja þverfagleg tengsl fagfólks og sérfræðinga í hönnun og rannsóknum á umhverfi skólastarfs.
Helstu þættir dagskrár:
Kynningar gestgjafa við Háskóla Íslands og hjá Reykjavíkurborg á nýstárlegu og breytilegu umhverfi náms og kennslu í nýlegum byggingum íslenskra grunnskóla.
Yfirlit norrænna rannsakenda um athyglisverðustu þætti samvinnuverkefnisins LED Nordic 2024 til 2026. Sagt verður frá samantekt á rannsóknum á námsumhverfi norrænna skólabygginga, fjallað um inngildingu við hönnun skóla og sýndar myndir frá heimsóknum rannsóknarhópsins í nýstárlegar skólabyggingar á Norðurlöndum.
Erindi gestafyrirlesarans Jennifer Charteris frá New England-háskóla í Ástralíu um endurskipan rýma í skólum, endurhönnun og ferska hugsun í skólastarfi ásamt umfjöllun skólastjóra af innlendum vettvangi um reynsluna af nýju umhverfi.
Hádegisverður og skoðunarferðir:
Hádegisverður án endurgjalds og stutt skoðunarferð um nýuppgerð húsakynni Menntavísindasviðs Háskóla Íslands í Sögu verða í boði eftir að dagskrá í Eddu lýkur. Einnig verður mögulegt að taka þátt í skoðunarferð um grunnskólabyggingu með nýju sniði á höfðuborgarsvæðinu síðar sama dag (mögulega þarf að takmarka fjölda og láta röð skráninga ráða þátttöku).
Dagsetning: Miðvikudag 15. apríl 2026 kl. 9:00 til 12:00
Skráning: Til föstudags 10. apríl 2026, sjá hér:⬇️
https://forms.office.com/Pages/ResponsePage.aspx?id=Dl_6CRghVkaFKWd-2P2-eNuFSHDD2ihLt-FzLinJuIxUNk5TOFJZNEZVQkRTSkFGNFdHR1gyUVJSUi4u
Tungumál: Enska
Aðgengi: Aðgengi fyrir öll í húsakynnum Eddu og Sögu
Staðsetning: Fyrirlestrarsalur í Eddu – Húsi íslenskunnar, Arngrímsgötu 5, Reykjavik
Vefslóð til þátttöku á neti: Verður dreift í kjölfar skráningar
Skipulag: Háskóli Íslands, Menntavísindasvið og Reykjavíkurborg í samvinnu við LED Nordic undir forystu Háskólans í Jyväskylä. Skólastjórafélag Íslands á einnig aðild að viðburðinum.
Gjald: Ráðstefnan, veitingar og skoðunarferðir eru án endurgjalds
Frekari upplýsingar:
Umsjón á Íslandi:
Torfi Hjartarson dósent
[email protected]
Menntavísindasvið
Háskóli Íslands
Umsjón með LED Nordic-verkefni:
Dr. Tiina Mäkelä
[email protected]
Finnish Institute for Educational Research
University of Jyväskylä
--
LED Nordic: A Hybrid Seminar on Nordic Learning Environment Design
Wednesday 15th of April 2026 from 9:00 to 12:00 AM (GMT)
Registration: Until Friday the 10th of April 2026, see here: ⬇️
https://forms.office.com/Pages/ResponsePage.aspx?id=Dl_6CRghVkaFKWd-2P2-eNuFSHDD2ihLt-FzLinJuIxUNk5TOFJZNEZVQkRTSkFGNFdHR1gyUVJSUi4u
We are pleased to invite you to a hybrid seminar targeted for all those interested or involved in the design and research of physical learning environments: researchers, municipal representatives, educational administrators, school directors, teachers, architects, designers, etc.
It is organised as a part of the “Impact of Learning Environment Design on Teaching, Learning, and Wellbeing: A Nordic Perspective” (“LED Nordic”) project funded by the Nordplus Horizontal 2024 to 2026, involving researchers, municipal and company representatives from all five Nordic countries.
Our aim is to strengthen transdisciplinary and multiprofessional networks amongst professionals and experts in learning environment design and research.
Place: The seminar is held in Edda, a cultural building of renown on campus in Reykjavik, Iceland. Online participation is enabled by a stream link provided for registered participants.
Advertisement
Event Venue
Háskóli Íslands Edda, Sæmundargata 2, 102 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.






