Advertisement
Jazzklúbburinn Múlinn heldur áfram með vordadagskrá sína með spennandi tónleikum miðvikudaginn 15. apríl kl. 20:00 á Björtuloftum, Hörpu. Á tónleikunum kemur fram kvartett hammond orgelleikarans Andreas Hellkvist og saxófónleikarans Sigurðar Flosasonar. Andreas Hellkvist er einn fremsti hammon-orgelleikari Svía. Hann og Sigurður Flosason hafa þekkst lengi og meðal annars spilað saman í Svíþjóð. Þessi kvartett kom fyrst saman í fyrra og lék við frábærar undirtektir hjá klúbbnum. Flutt verður frumsamin tónlist á mörkum jazz og blús eftir Andreas og Sigurð. Ásamt þeim leikur Andrés Þór Gunnlaugsson á gítar og Einar Scheving á trommur. Andreas Hellkvist - Sigurður Flosason Quartet
Andreas Hellkvist is one of Sweden’s foremost Hammond-organ players. He and Icelandic saxophonist Sigurður Flosason have known each other for a long time and have performed together in Sweden. This particular quartet played together at Múlinn Jazz Club last year and recieved an enthusiastic response. The music is written by Andreas and Sigurdur and lies somewhere between jazz and blues. Andrés Þór Gunnlaugsson plays guitar and Einar Scheving plays drums.
Sigurður Flosason, saxophone
Andreas Hellkvist, hammond organ
Andrés Þór Gunnlaugsson, guitar
Einar Scheving, drums
The concert starts at 20 @ Björtuloft, Harpa Concert House. Tickets ISK 4900.
Spennandi vordagskrá Múlans heldur síðan áfram á miðvikudagskvöldum fram í lok maí. Múlinn er að hefja sitt 29. starfsár en hann er samstarfsverkefni Félags Íslenskra Hljómlistamanna (FÍH) og Jazzvakningar. Klúbburinn heitir í höfuðið á Jóni Múla Árnasyni sem jafnframt var heiðursfélagi og verndari Múlans.
Múlinn er styrktur af Reykjavíkurborg, Tónlistarsjóði og SUT sjóðnum og er í samstarfi við Heimstónlistarklúbbinn og Hörpu.
Jazzklúbburinn Múlinn er handhafi Íslensku tónlistarverðalaunanna.
Tónleikar Múlans fara fram á miðvikudagskvöldum klukkan 20:00 á Björtuloftum, fimmtu hæð Hörpu. Miðaverð kr. 4900 og 3600 fyrir nemendur og eldri borgara, miðar fást í miðasölu Hörpu
Advertisement
Event Venue
Harpa Concert Hall and Conference Centre, 101 Reykjavík, Iceland, Austurbakki 2, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.








