Upprásin | j. bear & the cubs, Venus Volcanism og Gargan

Tue Apr 14 2026 at 08:00 pm to 10:00 pm UTC+00:00

Austurbakki 2, 101 Reykjavík, Iceland | Reykjavík

Harpa t\u00f3nlistar- og r\u00e1\u00f0stefnuh\u00fas \/ Harpa Concert Hall and Conference Centre
Publisher/HostHarpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre
Uppr\u00e1sin | j. bear & the cubs, Venus Volcanism og Gargan
Advertisement
Á þessum tónleikum koma fram j. bear & the cubs, Venus Volcanism og Gargan.
Harpa, í samstarfi við Tónlistarborgina Reykjavík, Rás 2 og Landsbankann, stendur fyrir Upprásinni, tónleikaröð sem tileinkuð er grasrót íslenskrar tónlistar, þvert á tónlistarstefnur. Upprásin fer nú fram þriðja árið í röð og munu samtals 27 hljómsveitir koma fram, þrjár á hverju tónleikakvöldi.
Tónleikaröðin er liður í því að framfylgja dagskrárstefnu Hörpu um bætt aðgengi grasrótar og ungs fólks í öllum tónlistargreinum og auka við fjölbreytni. Markmiðið er einnig að tónlistaráhugafólk geti gengið að því vísu að heyra fjölbreytta nýja íslenska tónlist, beint úr grasrót tónlistarlífsins, flutta við kjöraðstæður í tónlistarhúsi þjóðarinnar.
Miðaverð er aðeins 2000 kr. en hægt er að leggja til hærri upphæð í miðasöluferlinu sem rennur beint til listafólksins.
J.BEAR & THE CUBS
Hljómsveitin j. bear & the cubs varð til í lok febrúar 2025 og einungis til að spila á Músíktilraunum en þegar boltinn var kominn af stað hætti hann ekki að rúlla. Nú er leiðtogi bandsins á fullu að klára öll lögin sem gleymdust yfir árin og hljómsveitin stefnir á að spila hvar og hvenær sem er til að dreifa góðri orku og boðskap kærleikans sem hljóðar svo: Þú þarft ekki að þjást í einrúmi.
Hljómsveitina skipa Jasper Matthew Bunch, Óðinn Ýmisson, Sigurður Már Gestsson og Sindri Þór Atlason.
VENUS VOLCANISM
Venus Volcanism er listamannsnafn Rena Rasouli en hún er söngkona, tónskáld og hljóðlistakona, ættuð frá Krít í Grikklandi og búsett á Siglufirði.
Hún blandar í fíngerðum og seiðandi verkum sínum meðal annars saman söng, rafhljóðum og vettvangsupptökum en innblástur og yrkisefni sækir hún í náttúru, þjóðlagaarf og heilunarmátt hljóðsins svo eitthvað sé nefnt. Hún hefur sent frá sér plöturnar Rizitiko (2020) og Tissue (2023), sú síðarnefnda er nokkurs konar persónulegur leiðangur um íslenskt landslag þar sem vettvangsupptökur af eldhræringum, hafstraumum og öðrum náttúruhljóðum fléttast inn í mínímalískan hljóðheim. Hún hefur einnig samið tónlist við danskvikmyndina Ruins Within Ruins. Venus Volcanism hefur komið fram á tónleikum og tónlistarhátíðum í Danmörku, Grikklandi og á Íslandi, má þar nefna Extreme Chill Festival, Snæfjallahátíð og Into Festival í Alþýðuhúsinu á Siglufirði.
Hún er einnig annar helmingur dúettsins V.V.I.A en upphaflega átti dúettinn að koma fram saman í Upprásinni.
GARGAN
Gargan skapar fjölbreyttan heim hljóða þar sem heyra má klarinettlínur, umhverfishljóð, biluð heimilistæki og klassísk heimilisáhöld, hljóðgervla og raddir. Þær bjóða hlustendum í ferðalag um ólíka hljóðheima og skoða allan tilfinningaskalann. Í lifandi flutningi gargar klarínettleikari í gegnum hljóðfærið sitt og við heyrum rafskruð og óhljóð úr öllum stærðum og gerðum. Tónlistin er bæði hrá og djúp, skipulögð en stjórnlaus í senn. Tónlistin er frumsamin.
Gargan skipa Bergþóra Kristbergsdóttir og Hulda Ragnhildur Hjálmarsdóttir.
*** Jelena Ciric, sem upphaflega var auglýst á þessu kvöldi kemur fram í Upprásinni, 10.mars 2026.
---
This concert will feature j.bear & the cubs, Venus Volcanism and Gargan.
Harpa, in collaboration with the Reykjavík Music City, Rás 2 and Landsbankinn, is hosting Upprásin, a concert series dedicated to grassroots Icelandic music, across musical genres. Upprásin is now taking place for the third year in a row and a total of 27 bands will perform, three on each concert night.
Ticket prices are only 2000 kr. but it is possible to contribute a higher amount during the ticket sales process, which will go directly to the artists.
J.BEAR & THE CUBS
The band j. bear & the cubs was formed at the end of February 2025 and only to play at Músíktilraunir, but once the ball got going it didn't stop rolling. Now the band's leader is busy finishing all the songs that were forgotten over the years and the band plans to play anywhere and anytime to spread good energy and the message of love that goes: "You don't have to suffer in private."
Band members are Jasper Matthew Bunch, Óðinn Ýmisson, Sigurður Már Gestsson and Sindri Þór Atlason.
VENUS VOLCANISM
Venus Volcanism is the solo music and sound art project of Rena Rasouli, a vocalist, composer, producer and sound explorer originally from Crete, Greece, currently based in Siglufjörður ,Northern Iceland. Her artistic practice focuses on voice as a tool of memory, healing and transformation, merging tradition with experimental sound to create deeply immersive and emotionally resonant experiences.Venus Volcanism has performed live in Greece, Denmark and Iceland. Her performances often expand beyond the concert format, incorporating site-specific sound, spatial listening and ritualistic elements.
GARGAN
Gargan creates a diverse world of sounds; clarinet textures, ambient sounds, recordings of broken appliances and classic household items, synthesizers and voices. They invite listeners on a journey through different sound worlds and explore the full range of emotions. In a live performance, a clarinetist gurgles through his instrument and we hear electronic noises and noises of all shapes and sizes. The music is both raw and deep, structured but uncontrolled at the same time. Gargan are Bergþóra Kristbergsdóttir and Hulda Ragnhildur Hjálmarsdóttir.
*** Please note that Jelena Ciric, who was in the initial lineup for the concert, will perform on March 10 in Upprásin Concert Series.
Advertisement

Event Venue & Nearby Stays

Austurbakki 2, 101 Reykjavík, Iceland, Austurbakki 2, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland

Icon
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.

Ask AI if this event suits you:

More Events in Reykjavík

G\u00e6\u00f0astundir: Grandalaus vi\u00f0f\u00f6ng | Lei\u00f0s\u00f6gn s\u00e9rfr\u00e6\u00f0ings
Wed, 15 Apr at 02:00 pm Gæðastundir: Grandalaus viðföng | Leiðsögn sérfræðings

Fríkirkjuvegur 7, 101 Reykjavík, Iceland

Sk\u00f6pun heimsins
Thu, 16 Apr at 07:30 pm Sköpun heimsins

Eldborg, Harpa, Austurbakka 2

Hatha Yoga Teacher Training with Klara - 100hr Extended Education
Fri, 17 Apr at 05:00 pm Hatha Yoga Teacher Training with Klara - 100hr Extended Education

Yoga Shala Reykjavík

Iceland Social Dance - 17\/19.April 2026
Fri, 17 Apr at 06:30 pm Iceland Social Dance - 17/19.April 2026

Reykjavík City Center

NAI BARGHOUTI OG HLJ\u00d3MSVEIT
Fri, 17 Apr at 08:00 pm NAI BARGHOUTI OG HLJÓMSVEIT

Austurbakki 2, 101 Reykjavík, Iceland

Demolition Man - F\u00f6studagspart\u00eds\u00fdning!
Fri, 17 Apr at 09:00 pm Demolition Man - Föstudagspartísýning!

Hverfisgata 54, 101 Reykjavík, Iceland

Reykjavík is Happening!

Never miss your favorite happenings again!

Explore Reykjavík Events