Nú verður talið í stórtónleika í Iðnó.
Bandið flytur vandaða cover tónlist frá mörgum af þekktum
blústónlistarmönnum heims.
T.d. Shemekia Copeland, Etta James, Beth Hart, Susan Tedeschi,
Maggie Bell og fleirum blússnillingum.
Hljómsveitina skipa:
Kristjana Þórey Ólafsdóttir, söngur
Helgi Georgsson, píanó og söngur
Árni Björnsson, gítar
Jón Bjarki Bentsson, bassi
Aðalsteinn Snorrason, gítar
Skúli Thoroddsen, trommur
Hljómsveitin hefur starfað í núverandi mynd í rúm þrjú ár og komið fram reglulega með tónleika, t.d. Dillon, Ægir 220, Ölver, Krúttið, Bird, Krúserklúbburinn, Djúpið. Tekið þátt í Blúshátíð Reykjavíkur og Menningarnótt í Hörpu.
Þetta verður kvöld þar sem blúsinn ræður ríkjum og er von á mikilli stemningu.
Miðaverð aðeins 4.900 kr. og hægt að nálgast þá á TIX.IS
Event Venue
IÐNÓ, Vonarstræti 3, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.











