Advertisement
Fríða Björk Ingvarsdóttir, fyrrverandi rektor Listaháskóla Íslands og Sunna Ástþórsdóttir, sýningarstjóri ræða sýningu Guðrúnar Kristjánsdóttur Leiðir á Kjarvalsstöðum.Í samtali Fríðu og Sunnu er farið yfir verk Guðrúnar Kristjánsdóttur á sýningunni og þau sett í samhengi við feril hennar og ólíkar leiðir í listsköpun. Formið verður opið og lifandi og gestum boðið að taka virkan þátt í umræðunni, umvafðir verkum sem spanna fjóra áratugi.
Guðrún hefur skapað sér sérstöðu í íslenskri myndlist með verkum sem skoða samband náttúru og manns, mótað af birtu á Íslandi. Hún nálgast náttúruna sem lifandi afl, þar sem kyrrð og kraftur mætast og óvænt fegurð birtist í hógværum augnablikum.
Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir Árskorts- og Menningarkorthafa, frítt fyrir yngri en 18 ára.
//
Fríða Björk Ingvarsdóttir, former Rector of the Iceland University of the Arts, and Sunna Ástþórsdóttir, curator, discuss Guðrún Kristjánsdóttir’s exhibition Pathways at Kjarvalsstaðir.
In the conversation between Fríða and Sunna, Guðrún Kristjánsdóttir’s works featured in the exhibition are discussed and placed in the context of her career and the different pathways she has explored in her artistic practice. The format will be open and lively, with guests invited to take an active part in the discussion, surrounded by works spanning four decades.
Guðrún has established a distinctive position within Icelandic visual art through works that explore the relationship between nature and humanity, shaped by the unique light of Iceland. She approaches nature as a living force, where stillness and power converge and unexpected beauty emerges in quiet, understated moments.
Admission with museum ticket. Free for Annual pass- and Culture Card holders, free for visitors under 18.
Advertisement
Event Venue
Kjarvalsstaðir, Flókagata 24,Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.









