Advertisement
Bíó Paradís og Kvikmyndasafn Íslands sýna allar íslensku kvikmyndirnar sem teknar voru fyrir í þáttunum Stjörnubíó sem sýndir voru á RUV. ÞÚ MÁTT EKKI láta þig vanta á geggjaða sýningu á hinni óborganlegu grínmynd ÍSLENSKI DRAUMURINN – laugardaginn 16. maí kl.21:00.
Íslenski draumurinn fjallar um draumóramanninn Tóta, en hann hefur hugsað sér að gerast ríkur á því að flytja inn búlgarskar sígarettur til landsins. Þess á milli lendir hann í rifrildi við fyrrverandi konu sína, sem er eitthvað fúl út í Tóta vegna nýju kærustunnar, sem er 18 ára. Einnig ver Tóti stórum hluta af tíma sínum í það annaðhvort að horfa á fótbolta í sjónvarpinu eða að spila Football Manager í tölvunni sinni.
Myndin er sýnd í nýrri stafrænni útgáfu í samstarfi við Kvikmyndasafn Íslands á sérstakri sýningu laugardaginn 16. maí kl 19:00.
Advertisement
Event Venue
Hverfisgata 54, 101 Reykjavík, Iceland, Hverfisgata 54, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.











