#StayHappening
Fri, 18 Sep, 2026 at 08:00 pm UTC+00:00

Rökkurtónar

  • Salurinn Tónlistarhús · Kopavogur
Salurinn T\u00f3nlistarh\u00fas Publisher / Host Salurinn Tónlistarhús
Share
R\u00f6kkurt\u00f3nar
Advertisement
Íslensk og norsk þjóðlagatónlist á sama sviði
Á föstudagskvöldi Vöku mætist íslensk og norsk þjóðlagatónlist á einum af stóru tónlistarviðburðum hátíðarinnar.
Þjóðlagasveitin UMBRA er skipuð fjórum tónlistarkonum sem allar hafa heillast af íslenskri sagna- og tónlistarhefð. Tónlist þeirra einkennist af röddum, strengjahljóðfærum og slagverki í fáguðum útsetningum sem draga hlustandann inn í einstakan hljóðheim. Í verkum sínum hafa þær meðal annars beint sjónum að sögum og reynsluheimi íslenskra kvenna fyrri alda. Hljómsveitin hlaut íslensku tónlistarverðlaunin fyrir plötuna Sólhvörf og hefur um árabil kynnt íslenska þjóðlagatónlist á tónleikum víða um heim, meðal annars í Evrópu og Kína.
Ingrid Lingaas Fossum hefur skipað sér í fremstu röð norskra þjóðlagatónlistarmanna og var valin þjóðlagatónlistarmaður ársins í Noregi árið 2025. Hún hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir leik sinn á langeleik, sem er eitt elsta og sérkennilegasta hljóðfæri Noregs, og átt stóran þátt í að kynna það fyrir nýjum kynslóðum hlustenda.
Vegar Vårdal er einn kraftmesti fiðluleikari norsku þjóðlagasenunnar og hlaut nafnbótina þjóðlagatónlistarmaður ársins í Noregi árið 2020. Sem flytjandi, tónskáld og dansari hefur hann um árabil verið áberandi afl í norsku þjóðlistalífi. Hann kom að útgáfu bókarinnar Danslög Jónasar og hefur undanfarin missari kennt og útsett danslög fyrir íslenska strengjanemendur.
Vegard Hansen er norskur harmoníkuleikari, tónskáld og kennari við Ole Bull akademíuna, með djúpar rætur í norskri þjóðtónlistarhefð, en hann er jafnframt forstöðumaður hardingfela.no í samvinnu við Hardanger og Voss safnið.
Ingrid, Vegar og Vegard eru einnig mikilsvirtir kennarar og gefst gestum Vöku einstakt tækifæri til að sækja vinnusmiðjur undir þeirra leiðsögn.
//
VAKA þjóðlistahátíð fer fram dagana 13.– 19. september 2026 í Kópavogi. Á hátíðinni mætast tónlist, dans, handverk, sagnalist og kveðskapur í fjölbreyttri dagskrá fyrir forvitna gesti á öllum aldri. VAKA leggur áherslu á að gera sem flestum kleift að sækja viðburði hátíðarinnar. Því eru í boði þrír mismunandi verðflokkar á flesta viðburði og velur hver gestur það verð sem hentar best. Tryggið ykkur hátíðarpassa sem veitir ykkur aðgang að öllum viðburðum hátíðarinnar.
Allar upplýsingar um hátíðina má finna á www.vakareykjavik.is og á samfélagsmiðlum Vökufélagsins.
Advertisement

Event venue

Salurinn Tónlistarhús, Hamraborg 6, 200 Kópavogsbær, Ísland, Kopavogur, Iceland

Tickets
Concerts, fests, parties, meetups — all the happenings, one place.

Discover more events by tag

Ask AI if this event suits you

Keep the plans coming

More events in Kopavogur

KRAKKAVAKA

Sat, 19 Sep at 04:00 pm Salurinn Tónlistarhús

VÖKUPARTÍ

Sat, 19 Sep at 07:00 pm Salurinn Tónlistarhús

Galla í-lát

Sun, 20 Sep at 01:00 pm Borgarbókasafnið Árbæ, Hraunbæ 119

Kopavogur is happening.

See everything else that’s on — concerts, markets, comedy and more.