#StayHappening
Sun Sep 20 2026 at 01:00 pm to 03:00 pm UTC+00:00

Galla í-lát

  • Borgarbókasafnið Árbæ, Hraunbæ 119 · Kopavogur
Borgarb\u00f3kasafni\u00f0 Publisher / Host Borgarbókasafnið
Share
Galla \u00ed-l\u00e1t
Advertisement
Leynast gallabuxur í skápnum hjá þér sem verða ekki notaðar aftur? Er þá ekki tilvalið að gera eitthvað nytsamt úr þeim?
Í smiðjunni búum við til buddu eða litla körfu sem hægt er að geyma ýmislegt í s.s. snyrtivörur, liti, spjaldtölvu eða eitthvað allt annað. Við sníðum, saumum og skreytum þær þannig að hver þeirra verður einstök.
Guðrún Borghildur textílhönnuður leiðbeinir þátttakendum. Hún er menntaður lífeindafræðingur en hefur alla tíð verið með ástríðu fyrir sköpun. Vörur sínar selur hún m.a. í Kirsuberjatrénu.
Guðrún leggur áherslu á endurnýtingu í hönnun sinni enda eru hráefnisbirgðir heimsins ekki endalausar. Hún notar margs konar textíl við sköpunina s.s. gamla leðurjakka, silkiföt og jafnvel gömul tjöld. Að þessu sinni eru gallabuxur eða annar fatnaður úr gallaefni viðfangsefnið.
Þátttakendur koma með gallabuxur með sér sem efnivið. Eitthvað af skrauti, tölum o.fl. sem hægt er að nota, verður á staðnum en fólk er þó hvatt til að taka með sér eitthvað sniðugt til að skreyta með.
Borgarbókasafnið er þátttakandi í alþjóðlegu verkefni til þriggja ára sem nefnist make-a-thek. Markmiðið með þessu verkefni er að skapa vettvang fyrir skapandi og framsækna neytendur (prosumer) þar sem þekkingu er deilt og við lærum í sameiningu nýjar aðferðir t.d. við að gera við textíl, og kynnumst allskyns handverki og aðferðum. Þetta er ferðalag og áfangastaðurinn mótast með þátttöku sem flestra. Verkefnið er styrkt af Evrópusambandinu.
Sjá: https://borgarbokasafn.is/hvad-er-make-thek
www.gudrunborghildur.is
Nánari upplýsingar:
Katrín Guðmundsdóttir, Borgarbókasafninu Árbæ
[email protected]
Guðrún Borghildur Ingvarsdóttir, textílhönnuður
[email protected] | Sími 849 8022

-------------

make-a-thek | Denim Purse
Do you have jeans in your closet that you’ll never wear again? Why not turn them into something useful?
In this workshop, we will make a purse or a small basket that can be used to store various items such as cosmetics, art supplies, Ipad or anything else. We will cut, sew, and decorate them so each one becomes unique.
Textile designer Guðrún Borghildur will guide participants. She is trained as a biomedical scientist but has always had a passion for creative work. She sells her products, among other places, at Kirsuberjatréð.
Guðrún emphasizes upcycling in her design work, as the world’s supply of raw materials is not endless. She uses various types of textiles in her creations, such as old leather jackets, silk garments, and even old curtains. This time, the focus is on jeans or other denim clothing.
Participants should bring old jeans to use as materials. Some decorations, buttons, etc., will be available on-site, but people are encouraged to bring something fun to decorate with.
The City Library is participating in a three-year international project called make-a-thek. The aim of this project is to create a platform for creative and forward-thinking consumers (“prosumers”), where knowledge is shared and we learn together new methods, for example how to repair textiles, and get to know various crafts and techniques. This is a journey, and the destination is shaped by the participation of as many people as possible.
The project is funded by the European Union.
www.gudrunborghildur.is
Further information:
Katrín Guðmundsdóttir,Árbær City Library
[email protected]
Guðrún Borghildur Ingvarsdóttir, Textile designer
[email protected] | Tel. 849 8022
Advertisement

Event venue

Borgarbókasafnið Árbæ, Hraunbæ 119, Fjörgyn 1, 112 Reykjavíkurborg, Ísland, Kopavogur, Iceland

Tickets
Concerts, fests, parties, meetups — all the happenings, one place.

Discover more events by tag

Ask AI if this event suits you

Keep the plans coming

More events in Kopavogur

KRAKKAVAKA

Sat, 19 Sep at 04:00 pm Salurinn Tónlistarhús

VÖKUPARTÍ

Sat, 19 Sep at 07:00 pm Salurinn Tónlistarhús

Kopavogur is happening.

See everything else that’s on — concerts, markets, comedy and more.