Advertisement
Hvað: jafningjastuðningurHvar: Mannréttindahúsið
Hvenær: Miðvikudaginn 11. mars 2026, kl. 19:30-21:15..
---
Tabú, feminísk fötlunarhreyfing, hefur haldið úti jafningjastuðningi og jafningjanámskeiðum fyrir fatlaðar konur og kvár í rúman áratug. Í vetur halda mánaðarlegir opnir fundir áfram fyrir þennan hóp.
Jafningjaráðgjöf er einn af hornsteinum hugmyndafræði mannréttindabaráttu fatlaðs fólks um sjálfstætt líf og er álitin ein mikilvægasta leiðin til valdeflingar og sjálfræðis fyrir fatlað fólk. Þar er fatlað fólk álitið sérfræðingar í eigin lífi og með dýrmæta þekkingu á þeim hindrunum sem við mætum og hvernig við tæklum þær.
Jafningjastuðningur kemur ekki staðin fyrir sálfræðiaðstoð en getur verið góð byrjun og/eða sjálfsvinna samhliða henni, sem og ein og sér.
Hver fundur mun hafa ákveðið viðfangsefni og umræðum verður stýrt af umsjónaraðila sem hefur reynslu af því að leiða jafningjahópa og er fötluð sjálf.
Næsti fundur ársins fer fram 11. mars nk. kl. 19:30-21:15. Ef óskað er eftir táknmálstúlki vinsamlega hafið samband á [email protected] með eins góðum fyrirvara og mögulegt er.
Advertisement
Event Venue
Mannréttindahúsið, Sigtún 42, 105 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.











