Advertisement
Tónleikarnir Öll veröldin er leiksvið er helguð magnaðri leikhústónlist Hjálmars H. Ragnarssonar. Flutt verður tónlist úr sýningunum Yerma (1987), Pétur Gautur (1991) og Cyrano de Bergerac (2001) sem settar voru upp í Þjóðleikhúsinu, og einnig sýningunni Himnaríki og helvíti sem var sett upp í Borgarleikhúsinu 2018.Flytjendur eru Herdís Anna Jónasdóttir sópran, Hallveig Rúnarsdóttir sópran, Hildigunnur Einarsdóttir mezzósópran, Fjölnir Ólafsson baríton, Pétur Grétarsson slagverksleikari, Steef van Oosterhoot slagverksleikari, Hrönn Þráinsdóttir píanóleikari, Sif Tulinius fiðluleikari, kammerkórinn Cantoque Ensemble og Rússíbanarnir, sem koma aftur saman fyrir þetta tilefni.
Tónleikarnir fara fram í Norðurljósum, miðvikudagskvöldið 11. mars kl 20.00.
Hjálmar H. Ragnarsson er eitt afkastamesta og dáðasta tónskáld íslensks samtíma.
Þar skipar leikhústónlist afar mikilvægan sess. Hér hljómar tónlist úr nokkrum leiksýningum sem Hjálmar samdi tónlistina við. Þar er viðamesti hlutinn kraftmikil og ómótstæðileg tónlist hans úr uppfærslu Þjóðleikhússins á Yermu, verki Federico Garcia Lorca í leikstjórn Þórhildar Þorleifsdóttur en sýningin sló eftirminnilega í gegn þegar hún var sett upp 1987.
Einnig verður tónlist úr sýningunum Himnaríki og helvíti, byggð á skáldverki Jóns Kalmans Stefánssonar, sett upp í Þjóðleikhúsinu árið 2018 í leikstjórn Egils Heiðars Antons Pálssonar og Pétri Gaut, uppfærslu Þjóðleikhússins frá árinu 1991 á leikriti Henrik Ibsens í leikstjórn Þórhildar Þorleifsdóttur.
Að lokum má nefna tónlist úr leikritinu Cyrano de Bergerac þar sem hljómsveitin Rússíbanarnir munu koma aftur saman, en sú uppfærsla sló ekki síður í gegn, frumsýnd í Þjóðleikhúsinu árið 2001.
Auk leikhústónlistarinnar verður flutt hið magnaða Ástarljóð mitt sem Hjálmar samdi fyrir sópran og píanó í tilefni fertugsafmælis eiginkonu sinnar Ásu Richardsdóttur. Ljóðið er eftir Else Lasker Schüler í þýðingu Hannesar Péturssonar.
Að tónleikunum koma ýmsir listamenn í fremstu röð.
Sópransöngkonan Herdís Anna Jónasdóttir hefur vakið verðskuldaða athygli frá því hún kom fyrst fram á sjónarsviðið en hún hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin sem söngkona ársins árið 2025. Hallveig Rúnarsdóttir hefur hlotið sömu verðlaun í tvígang en hún hefur sungið sig inn í hjörtu landsmanna frá því hún kom heim úr námi árið 2001. Hildigunnur Einarsdóttir er ein eftirsóttasta mezzópransöngkona landsins og hlaut einmitt Íslensku tónlistarverðlaunin sem söngkona ársins árið 2023. Fjölnir Ólafsson baritónsöngvari hefur starfað með fjöldamörgum tónlistarhópum hérlendis og hlaut verðlaunin Bjartasta vonin á Tónlistarverðlaununum árið 2014.
Pétur Grétarsson hefur verið farsæll tónlistarmaður og slagverksleikari um langt skeið og átti stóran þátt í sýningunni Yerma. Einnig kemur Steef van Oosterhoot slagverksleikari fram, en hann er einn af færustu slagverksleikurum þjóðarinnar. Hrönn Þráinsdóttir hefur fyrir löngu sannað sig sem einn eftirsóttasti píanóleikari og meðleikari söngvara á Íslandi. Sif Tulinius fiðluleikari hefur löngu sannað sig sem einn helsti tónlistarmaður þjóðarinnar og hún mun leika á tónleikunum. Þá má nefna Cantoque Ensemble sem er tvímælalaust einn af fremstu kórum landsins og síðast en ekki síst má nefna hina sprellfjörugu Rússíbana sem koma saman á ný eftir langt leikhlé.
Að tónleikunum koma einnig Þórhildur Þorleifsdóttir sem listrænn ráðgjafi og Páll Ragnarsson, ljósahönnuður.
Tónleikarnir eru haldnir í samstarfi við Hörpu og með styrk úr Tónlistarsjóði og frá Styrktarsjóði Samtaka um tónlistarhús og Ruthar Hermanns.
Advertisement
Event Venue
Harpa Concert Hall, Epal - Harpa og Laugavegur, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.











