Advertisement
Hafrannsóknastofnun og Landbúnaðarsafn Íslands efna til málþings þann 12. mars nk. kl. 13:00 til heiðruð Sigurði Má Einarsyni, fiskifræðingi. Sigurður Már hefur sinnt rannsóknum á ferskvatnsfiksum í rúm 40 ár, en hann hóf störf hjá Veiðimálastofnun árið 1981 með námi. Í júní 1985 tók hann við starfsstöð Veiðimálstofnunnar á Vesturlandi, fyrst með starfsstöð í Borgarnesi en síðar á Hvanneyri. Helsti starfsvettvangur hans hefur engu að síður verið þær fjölmörgu laxveiðiár sem finna má á Vesturlandi.Á málþinginu verður farið yfir rannsóknir á ferskvatnsfiskum og samstarf við veiðifélög sl. fjóra áratugi frá starfstöðinni á Vesturlandi. Einnig verða sérstök erindi um rannsóknir á sjóbleikju í Hvítá í Borgarfirði og um ferðir laxa í sjó.
Nákvæmari dagskrá og heiti erinda verður birt síðar.
Málþingið verður haldið í Ársal í Ásgarði á Hvanneyri, húsnæði Landbúnaðarháskóla Íslands . Eftir að erindum lýkur verður boðið upp á spjall og léttar veitingar í Landbúnaðarsafni Íslands í Halldórsfjósi á Hvanneyri. Þar var sett upp sýning um sögu laxveiða í Borgarfirði síðastliðið sumar sem gestum gefst tækifæri til að skoða.
Advertisement
Event Venue
Hvanneyrabraut, Hvanneyri., Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.











