#StayHappening
Tue, 17 Nov, 2026 at 01:00 pm UTC+00:00

Nákvæmnisbúskapur í landbúnaði

  • Keldnaholt, 112 Reykjavík, Iceland · Kopavogur
Endurmenntun LBH\u00cd Publisher / Host Endurmenntun LBHÍ
Share
N\u00e1kv\u00e6mnisb\u00faskapur \u00ed landb\u00fana\u00f0i
Advertisement
Nákvæmnisbúskapur í landbúnaði 🌾 Hvað getur GPS, sjálfvirk stýring og betri nýting gagna gert fyrir þinn búrekstur?
Tækni í landbúnaði þróast hratt, en þarf hún að vera flókin eða kalla á nýjan búnað? Á þessu hálfsdagsnámskeiði skoðum við hagnýtar tæknilausnir og ræðum hvernig þær geta nýst í íslenskum búrekstri — líka með þeim búnaði sem þegar er til staðar.
Farið verður meðal annars yfir:
📍 GPS-stýringar og sjálfvirka stýringu véla
🌱 Hlutastýringu (Section Control) og hvernig má draga úr skörun
🚜 Breytilega skammtastýringu á áburði og öðrum aðföngum
🗺️ Kort, jarðvegs- og uppskerugögn
📊 Gagnasöfnun, skráningu verka og ákvarðanatöku
💡 Hvar ávinningurinn gæti legið fyrir mismunandi bú
Námskeiðið hentar bændum, búrekstraraðilum, verktökum í landbúnaði og öðrum áhugasömum. Ekki er gert ráð fyrir fyrri þekkingu á nákvæmnisbúskap eða stafrænum kerfum.
Kennari er Dagbjartur Ketilsson, búfræðingur frá LBHÍ og sölustjóri landbúnaðar hjá Íslyft ehf. Dagbjartur hefur sérhæft sig í tækni og lausnum fyrir nútíma landbúnaðarvélar og byggir námskeiðið meðal annars á reynslu og raunverulegum dæmum úr íslenskum landbúnaði.
📅 Þri.17. nóv. kl. 13–17 hjá Landbúnaðarháskóli Íslands á Hvanneyri
📅 Fim 19. nóv. kl. 13–17 á Stóra-Ármót í Flóahreppi
Verklegt framhaldsnámskeið verður haldið vorið 2027 fyrir þau sem vilja skoða og prófa tæknina og búnaðinn sjálf. Nánar kynnt síðar.
👉 Skráning og nánari upplýsingar:
https://endurmenntun.lbhi.is/nakvaemnisbuskapur/
Advertisement

Event venue

Keldnaholt, 112 Reykjavík, Iceland, Kopavogur, Iceland

Tickets
Concerts, fests, parties, meetups — all the happenings, one place.

Discover more events by tag

Ask AI if this event suits you

Keep the plans coming

More events in Kopavogur

Kopavogur is happening.

See everything else that’s on — concerts, markets, comedy and more.