Advertisement
🕯️🎨🖌️ Verið velkomin í notalega föndurstund á bókasafninu þar sem þátttakendur læra að handmála kerti með akrýlmálningu í góðum félagsskap. Allt efni er á staðnum og nóg verður af góða skapinu en það er eflaust gott að taka sitt með líka! Fullkomið tækifæri til kynnast nýju dundi fyrir aðventuna. Heitt kaffi og te í boði fyrir þau sem vilja.
Thelma Lind er forfallinn fagurkeri og stemmningskona sem leggur stund á allt dund. Hún er með sjónlistarpróf frá Myndlistarskóla Reykjavíkur en er að öðru leyti sjálflærður listamaður sem unir sér best við pottana eða með pensil í hendi.
Þú getur fylgt henni á instagram hér:
https://www.instagram.com/thelmadund
Námskeiðið er ókeypis en skráning er nauðsynleg. Bóka pláss hér: https://borgarbokasafnid.enterpriseappointments.com/v2/#book-class/service/773
--English--
Welcome to a cozy craft time at the library where participants learn to hand-paint candles with acrylic paint in good company. All materials are provided, so just show up and start painting.
Thelma Lind is a mood-maker who dabbles in all kinds of creative tinkering. She has a visual art degree from The Reykjavík School of Visual Arts but is otherwise a self-taught artist who feels most at home cooking or with a paintbrush in hand.
You can follow Thelma on Instagram:
https://www.instagram.com/thelmadund
The workshop will be held in Icelandic and is free, but registration is required, link to sign up: https://borgarbokasafnid.enterpriseappointments.com/v2/#book-class/service/773
Advertisement
Event venue
Borgarbókasafn Úlfarsárdal, Kopavogur, Iceland
Tickets