Advertisement
Misþyrming, Morpholith og Afturganga bjóða upp á öfgarokkstónleika á Hrekkjavöku í Tónabíó. Svartmálmur, dómsmálmur og dauðarokk mun ráða ríkjum í Tónabíó 31. október.
Misþyrming hafa verið með stærstu svartmálmshljómsveitum landsins frá því að fyrsta breiðskífa þeirra, Söngvar elds og óreiðu, kom út fyrir ellefu árum og hafa spilað á helstu þungarokkshátíðum austan Atlantshafsins.
Morpholith hafa verið kyndilberar dómsmálmsins frá þeirra fyrstu tónleikum og verður allt sett á 11 á þessu kvöldi.
Afturganga er upprennandi dauðarokkssveit sem skartar reynsluboltum úr senunni.
Forsala er á Glaze og kostar aðeins 4990 kr á þennan drungalega viðburð. Einnig verður hægt að kaup við hurð á 6000 kr.
Advertisement
Event venue
RVK Bruggfélag Tónabíó, Skipholt 33, 105 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets