#StayHappening
Mon, 12 Oct, 2026 at 06:00 pm UTC+00:00

Markaðssókn í Ferðaþjónustu - Opinn kynningarfundur á Blönduósi

  • Blönduós · Saudarkrokur
Marka\u00f0sstofa Nor\u00f0urlands Publisher / Host Markaðsstofa Norðurlands
Share
Marka\u00f0ss\u00f3kn \u00ed Fer\u00f0a\u00fej\u00f3nustu - Opinn kynningarfundur \u00e1 Bl\u00f6ndu\u00f3si
Advertisement
Markaðsstofa Norðurlands og Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) hafa á undanförnum mánuðum unnið að verkefni sem miðar að því að byggja upp aðdráttarafl og leggja grunn að nýrri markaðssókn í ferðaþjónustu. Í verkefninu hefur verið unnið með samráðshópi hagaðila, skipuðum fulltrúum ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra, Íslandsstofu og Háskóla Íslands á Hólum.
Verkefnið er nú vel á veg komið. Megináherslur hafa verið mótaðar og markhópar og lykilmarkaðsskilaboð skilgreind. Ráðgjafar frá hugverkastofunum Instrument og Brandenburg hafa jafnframt verið fengnir til liðs við verkefnateymið til að móta næstu skref varðandi áherslur, slagorð, orðfæri og leiðir í kynningarmálum.
Mánudaginn 12. október kl. 18:00 verður haldinn opinn kynningarfundur í Krúttinu á Blönduósi. Þar munu forsvarsaðilar verkefnisins kynna verkefnið og næstu skref. Bragi Valdimar Skúlason og Ingvar Örn Ingvarsson frá Instrument munu jafnframt fara yfir þær áherslur og hugmyndir sem hafa mótast í vinnunni undanfarna mánuði. Að kynningum loknum gefst tími fyrir spurningar og umræður.
Súpa verður á boðstólum og við hvetjum öll áhugasöm til að mæta, kynna sér verkefnið og taka þátt í umræðunum.
Smelltu hér til að skrá þig: https://www.northiceland.is/is/kynningarfundur
Advertisement

Event venue

Blönduós, Aðalgata 6, 540 Blönduósbær, Ísland, Saudarkrokur, Iceland

Tickets
Concerts, fests, parties, meetups — all the happenings, one place.

Ask AI if this event suits you

Keep the plans coming

More events in Saudarkrokur

Saudarkrokur is happening.

See everything else that’s on — concerts, markets, comedy and more.