#StayHappening
Sat Oct 31 2026 at 02:00 pm to 03:45 pm UTC+00:00

Bergmál fjallanna - útgáfutónleikar Sigurdísar Tryggvadóttur í Blönduóskirkju

  • Blönduóskirkja · Saudarkrokur
Sigurd\u00eds Tryggvad\u00f3ttir Publisher / Host Sigurdís Tryggvadóttir
Share
Bergm\u00e1l fjallanna - \u00fatg\u00e1fut\u00f3nleikar Sigurd\u00edsar Tryggvad\u00f3ttur \u00ed Bl\u00f6ndu\u00f3skirkju
Advertisement

Tónskáldið, píanóleikarinn og söngkonan Sigurdís Tryggvadóttir frá Ártúnum í Blöndudal snýr aftur á heimaslóðir með sína fyrstu plötu, Bergmál fjallanna.
Tónleikarnir í Blönduóskirkju verða haldnir 31. október og hefjast kl. 14. Aðgangur er ókeypis en tekið verður við frjálsum framlögum í kirkjusjóð. Tónleikarnir vara í klukkustund og boðið verður upp á vöfflukaffi í kirkjunni að tónleikum loknum.
Bergmál fjallanna á rætur sínar í djassi en innblásturinn að tónsmíðunum og plötunni sækir Sigurdís heim í landslagið sem mótaði hana, fjöllin og bergmálið sem endurómar þeirra á milli.
Þessir endurómar tengjast arfleifð Jónasar Tryggvasonar (1916–1983), afabróður Sigurdísar. Jónas var brautryðjandi í tónlistarstarfi Austur-Húnavatnssýslu, samdi lög sem hafa lifað í sögu Karlakórs Bólstaðarhlíðarhrepps og gaf út ljóðabókina Harpan mín í hylnum (1959).
Jónas byrjaði ungur að missa sjónina og hefur Sigurdís samið tónlist við persónuleg og myndræn ljóð hans. Á plötunni hafa einnig tónverk hans við ljóð Davíðs Stefánssonar og Þorsteins Valdimarssonar fengið nýtt líf.
Ásamt Sigurdísi spila hinn pólski kontrabassaleikari Mariusz Praśniewski og trommuleikarinn Péter Horváth frá Ungverjalandi. Öll búa þau í Kaupmannahöfn. Á tónleikunum verður vínylplatan Bergmál fjallanna til sölu. Með útgáfunni fylgja fimm ljóð af plötunni ásamt enskum þýðingum þeirra.
Tónleikarnir eru styrktir af Uppbyggingarsjóði Norðurlands vestra og Menningarsjóði KS. Vöfflukaffið er styrkt af Vilko.
Advertisement

Event venue

Blönduóskirkja, Ósar Hostel, Ósar, 531 Húnaþing vestra, Ísland, Saudarkrokur, Iceland

Tickets
Concerts, fests, parties, meetups — all the happenings, one place.

Discover more events by tag

Ask AI if this event suits you

Keep the plans coming

More events in Saudarkrokur

Saudarkrokur is happening.

See everything else that’s on — concerts, markets, comedy and more.