Advertisement
Líkaminn geymir söguna okkar. Erfið reynsla eins og áföll og veikindi hvíla í líkamanum og geta hafa áhrif á okkur líkamlega og andlega. Einkenni getað komið fram sem: Orkuleysi, svefntruflanir, depurð, áhugaleysi, meltingatruflanir, verkir, kvíði, spenna, viðkvæmni og flr. Helgarnámskeiðið Líkaminn gleymir engu er nærandi helgi þar sem þú færð rými til að staldra við, hlusta á líkamann og kynnast leiðum sem geta hjálpað þér að skilja af hverju líkaminn bregst við eins og hann gerir og læra hvað þú getur gert til þess að losa spennu sem því sem þú berð með meiri mýkt og einföldum aðferðum.
Við vinnum með mjúka líkamsvinnu og kynnumst aðferðum sem getað aðstoðað okkur við að losa spennu úr kerfinu okkar.
Aðferðir sem við kynnumst og notum eru:
JÓGA NIDRA
BANDVEFSLOSUN
TÓNHEILUN
9D ÖNDUN
FLOTSLÖKUN / endum helgina í höndum vatnsþerapista sem er undursamlegt ferðalag.
Námskeiðið er ekki meðferð heldur færðu að fræðast og kynnast einföldum, líkamsmiðuðum verkfærum sem þú getur tekið með þér inn í daglegt líf.
Leiðbeinandi er Íris Eiríksdóttir, eigandi Yogahússins, jóga- og hugleiðslukennari, flotþerapisti og nuddari. Íris hefur kennt jóga frá árinu 2011 og hefur áralanga reynslu af starfi með syrgjendum, meðal annars sem hópstjóri hjá Sorgarmiðstöðinni. Námskeiðið hefur hún þróað út frá faglegri og personulegri reynslu sinni.
Engin reynsla er nauðsynleg. Þú ferð alltaf á þínum hraða og tekur þátt á þínum forsendum.
Stundum er fyrsta skrefið einfaldlega að byrja að hlusta á líkamann og bregðast rólega við þvi sem hann er að kalla eftir.
laugardagur 7/11 kl 10-16
Sunnudagur 8/11 kl 10 - 16:30
Verð 47.000 kr
Hressing og allur búnaður innifalin
Ítarleg dagskrá send þegar skráningu lokið.
skráning [email protected]
Takmarkaður fjöldi.
Advertisement
Event venue
Lífsgæðasetur st.jó Hafnarfirði Suðurgata 41, 220, Suðurgata 41, 220 Hafnarfjarðarkaupstaður, Ísland, Hafnarfjörður, Iceland
Tickets