#StayHappening
Thu Nov 19 2026 at 07:00 pm to 09:00 pm UTC+00:00

Jóli Hólm með jól í hjarta! ❤️

  • Bæjarbíó · Hafnarfjörður
S\u00f3li H\u00f3lm Publisher / Host Sóli Hólm
Share
J\u00f3li H\u00f3lm me\u00f0 j\u00f3l \u00ed hjarta! \u2764\ufe0f
Advertisement
Sala hefst 3. september kl 09:00 á Stubb.is! 🎄🎤🤣
Skemmtikrafturinn Sóli Hólm mætir nú til leiks með fimmtu útgáfuna af Jóla Hólm í Bæjarbíó í Hafnarfirði. Sóli fór af stað með Jóla Hólm árið 2022 og síðan þá hafa tugir þúsunda stólað á að Jóli Hólm komi þeim fordæmalaust jólaskap.
Jóli Hólm er hin fullkomna blanda af gríni og söng og fara gestir sýningarinnar allajafna glaðari en annað fólk inn í hátíð ljóss og friðar.
Tónlistarsnillingurinn Halldór Smárason hefur verið Sóla til halds og trausts frá upphafi og verður engin breyting þar á þetta árið. Saman leggja þeir metnað í að mæta með alveg nýtt prógram ár hvert og verður öllu tjaldað til á fimm ára afmæli Jóla Hólm.
Undanfarin ár hafa mikið færri komist að en vilja svo fólk er hvatt til að vera á tánum þegar miðasala hefst þann 3. september.
**Ath! Bæjarbíó áskilur sér rétt til færa miðapöntun til innan salarins til að ná fram betri sætanýtingu. Tilfærslan verður þó aldrei um meira en eitt sætisnúmer til hliðar.**
18 ára aldurstakmark
Advertisement

Event venue

Bæjarbíó, Strandgata 6, 220 Hafnarfjarðarkaupstaður, Ísland, Hafnarfjörður, Iceland

Tickets
Concerts, fests, parties, meetups — all the happenings, one place.

Discover more events by tag

Ask AI if this event suits you

Keep the plans coming

More events in Hafnarfjörður