Advertisement
Ljósin tendruð á Hamborgartrénu við Reykjavíkurhöfn 🎄 Laugardaginn 28. nóvember kl. 17.00 verða ljósin tendruð á Hamborgartrénu við hátíðlega athöfn á Miðbakka við Reykjavíkurhöfn. Lúðrasveit Hafnarfjarðar leikur jólalög við jólatréð og kemur gestum í sannkallað jólaskap.
Að athöfn lokinni býðst gestum að þiggja ljúffenga fiskisúpu í boði Brims í Landsbankanum við Reykjastræti 6. Jólasveinar og harmonikkuleikari skemmta gestum og leika jólalög.
Líkt og undanfarin ár sameina nágrannar við Reykjavíkurhöfn og félög með tengsl við sjómennsku og Þýskaland krafta sína til að skapa notalega jólastund við höfnina.
Að viðburðinum standa Faxaflóhafnir, Landsbankinn, Brim, Harpa, Hafnartorg, Sjómannadagsráð, Þýsk-íslenska viðskiptaráðið og Sendiráð Sambandslýðveldisins Þýskalands í Reykjavík.
DAGSKRÁ
- Jólakveðja frá Faxaflóahöfnum.
- Sendiherra Þýskalands tendrar ljósin á Hamborgartrénu.
- Jólasveinar sigla inn í gömlu höfnina á Magna, leggja að Miðbakkanum og leiða gesti að fiskisúpukötlunum í Landsbankanum.
SAGA GJAFMILDI OG ÞAKKLÆTIS
Hefðin að baki Hamborgartrénu á sér fallega sögu. Íslenskir sjómenn sem lögðu að í Hamborg eftir síðari heimsstyrjöld elduðu fiskisúpu handa svöngum börnum á meðan verið var að landa úr togurum þeirra. Í þakklætisskyni hófu hafnaryfirvöld í Hamborg árið 1965 að senda jólatré til Reykjavíkurhafnar. Hamborgartréð hefur síðan verið órjúfanlegur hluti af jólahaldinu við höfnina.
Af umhverfisástæðum er ekki lengur siglt með grenitréð frá Þýskalandi og hafa Faxaflóahafnir þess í stað keypt tré frá Skógræktinni undanfarin ár. 🌱
Við hlökkum til að sjá ykkur og eiga saman notalega jólastund við höfnina!
Advertisement
Event venue
Miðbakki - Reykjavíkurhöfn, Eisenbahn Denkmal, Geirsgata, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjav, Iceland
Tickets