#StayHappening
Sat, 28 Nov, 2026 at 08:00 pm UTC+00:00

FÓLK – SÍÐUSTU SÝNINGAR!

  • Tjarnarbíó (Reykjavík, Iceland) · Reykjav
Milkywhale Publisher / Host Milkywhale
Share
F\u00d3LK \u2013 S\u00cd\u00d0USTU S\u00ddNINGAR!
Advertisement
„Fyllti suma áhorfendur þvílíkum lífskrafti að það hafði áhrif á nætursvefn.“
- SGM, Morgunblaðið
Hvað gerist þegar aldagamlar rímur mæta popptónlist?
Í FÓLK sameinar Milkywhale kraft kórsöngs, raftónlistar og dans í sviðsupplifun þar sem íslenskur kvæðaarfur fær nýtt líf. Gamlar vísur umbreytast í takta, söng og hreyfingu og fortíðin mætir nútímanum í sameiginlegri hátíð um fólk, röddina og samfélagið.
Poppdúettinn Milkywhale er skipaður tónlistarmanninum Árna Rúnari Hlöðverssyni (FM Belfast) og dansaranum og söngkonunni Melkorku Sigríði Magnúsdóttur. Milkywhale hefur getið sér gott orð fyrir kraftmikla og gleðilega tónleika og hefur meðal annars komið fram á Hróarskeldu, Reeperbahn og fjölda annarra tónlistarhátíða.
Nú stígur Milkywhale á svið ásamt Kvæðakórnum í nýju tónlistar- og dansverki þar sem aldagamall kvæðaarfur er settur í nýjan búning.
Komið og sjáið okkur kveða og kveðja!
Advertisement

Event venue

Tjarnarbíó (Reykjavík, Iceland), Tjarnargata 12,Reykjavík, Iceland, Reykjav

Tickets
Concerts, fests, parties, meetups — all the happenings, one place.

Ask AI if this event suits you

Keep the plans coming

More events

Heimshorna á milli

Sat, 28 Nov at 02:00 pm Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre