Advertisement
Langleggur og Skjóða eru systkini jólasveinanna og kunna margar skemmtilegar sögur úr Grýluhelli. Þau hafa heldur betur slegið í gegn síðustu ár og heimsækja hinar ýmsu jólaskemmtanir með glænýja jólasögu á hverju ári.Í ár segir Skjóða frá því þegar hún og Rófa litla systir hennar fengu það mikilvæga verkefni að sækja hið fullkomna jólatré í Jólaskóginn. Ferðin gekk þó heldur hægar en áætlað var og áður en þær vissu af var
skollið á niðamyrkur. Skjóða er myrkfælin en verður nú að vera hugrökk fyrir litlu systur sína. Geta þær ratað aftur heim í Grýluhelli — og getur jólastjarnan kannski vísað þeim veginn?
Sagan er um 20 mínútur að lengd og á eftir syngja þau vel valin jólalög með krökkunum. Mörg börn þekkja Skjóðu úr jóladagatali Hurðaskellis og Skjóðu, Jólasögum Skjóðu á Storytel og úr bíómyndinni Jólamóðir.
--------------------------------
Leikritið verður haldið utandyra, í rjóðrinu fyrir ofan Lindasafn / Lindaskóla í Núpalind 7, sem kallast Lindaskógur.
Fyrir þau sem koma á bíl: bílastæði eru við Lindaskóla, bæði Núpalindarmegin og Galtalindarmegin.
Fyrir þau sem ferðast með strætó: Leiðir 2 og 28 stoppa í nágrenni við skólann.
Ef snjóar verða einnig nóg af lausum stæðum fyrir sleða og snjóþotur.
Leikritið er ókeypis og öll eru hjartanlega velkomin!
Advertisement
Event venue
Núpalind 7, 201 Kópavogsbær, Ísland, Núpalind 7, 201 Kópavogsbær, Ísland, Kopavogur, Iceland
Tickets
Discover more events by tag
Performances in KopavogurStorytelling in KopavogurChristmas in KopavogurChristmas-carols in KopavogurKids in KopavogurActing in KopavogurPerforming-arts in KopavogurMusic in Kopavogur