Advertisement
Laugardaginn 19. desember nk. fer fram svartbeltispróf skv. Kukkiwon stöðlum.Skráning er hafin fyrir próf fyrir 1. - 6. dan.
Áhugasamir eru beðnir um að skrá sig hjá undirrituðum og fá þeir þá nánari upplýsingar um prófkröfur fyrir hvert belti, ritgerðarefni o.s.fr.
Til að öðlast prófrétt þarf að mæta á amk. 1 dancamp fram að prófdag, nánari upplýsingar um camp hjá undirrituðum.
Verð er 50.000kr fyrir 1. - 6. dan. Að fullu greitt amk. viku fyrir prófdag. Staðfestingargjald er kr 15.000kr sem fæst ekki endurgreitt, greitt amk. 2 mánuðum fyrir próf.
Athugið að fyrir hærri dan gráður (4. - 6. dan) þarf að skila inn upptökum af Poomsae og mun það verða gert á prófstað. Þau myndbönd verða send inn til Kukkiwon skv. reglum þeirra.
Mæting í löglegum galla, með allar hlífar (brynja & hjálmur á staðnum), ritgerð fullkláruð og skilað á bæði tölvupósti viku fyrir próf sem og á pappír á prófdag.
Sendið inn stærð á galla og belti minnst 2 mánuðum fyrir prófdag.
Yfirkennarar hvers félags eru beðnir um að taka saman skráningar fyrir sína nemendur, athugið að nemendur geta ekki skráð sig sjálfir án samþykkis viðkomandi meistara.
Advertisement
Event venue
Mudo Gym Iceland, Víkurhvarf 1, 203 Kópavogsbær, Ísland, Kopavogur, Iceland
Tickets