#StayHappening
Sat Nov 28 2026 at 11:00 am to 12:00 pm UTC+00:00

Jólakötturinn & dularfulla kistan

  • Salurinn Tónlistarhús · Kopavogur
Salurinn T\u00f3nlistarh\u00fas Publisher / Host Salurinn Tónlistarhús
Share
J\u00f3lak\u00f6tturinn & dularfulla kistan
Advertisement
JÓLAKÖTTURINN & DULARFULLA KISTAN
Töfrandi barna- og fjölskyldusýning þar sem börnin taka virkan þátt í að bjarga jólunum!
Jólakötturinn rambar óvænt inn í Salinn í Kópavogi og þvert á þjóðtrú reynist hann hið besta skinn, þó svo að hann sé vissulega mikill prakkari.
Fljótlega sjá áhorfendur að Jólakötturinn er ekki í Salnum af eigin vilja. Hann hefur verið sendur af sjálfri Grýlu í óvænt og krefjandi ferðalag til að bjarga jólunum í Grýluhelli.
Í ljós kemur að Jólakötturinn hefur framið prakkarastrik í Grýluhelli með þeim afleiðingum að jólagleðin hverfur og jólunum því aflýst.
Verkefnið virðist vonlaust, en með hjálp barnanna í salnum leggur Jólakötturinn af stað í ævintýri fullt af töfrum, húmor og prakkarastrikum.
En tekst þeim að bjarga jólunum?
Jólakötturinn & dularfulla kistan er gagnvirk fjölskyldusýning þar sem börnin eru ekki bara áhorfendur heldur verða þau hluti af ævintýrinu og hjálpa Jólakettinum að leysa verkefnið.
Leikarar í sýningunni eru tveir ásamt nokkrum rauðklæddum og óvæntum gestum.
Advertisement

Event venue

Salurinn Tónlistarhús, Hamraborg 6, 200 Kópavogsbær, Ísland, Kopavogur, Iceland

Tickets
Concerts, fests, parties, meetups — all the happenings, one place.

Discover more events by tag

Ask AI if this event suits you

Keep the plans coming

More events in Kopavogur

Kopavogur is happening.

See everything else that’s on — concerts, markets, comedy and more.