#StayHappening
Wed Dec 02 2026 at 12:15 pm to 01:00 pm UTC+00:00

Leslyndi | Halldór Guðmundsson

  • Bókasafn Kópavogs · Kopavogur
B\u00f3kasafn K\u00f3pavogs Publisher / Host Bókasafn Kópavogs
Share
Leslyndi | Halld\u00f3r Gu\u00f0mundsson
Advertisement
Rithöfundurinn, útgefandinn og bókmenntaunnandinn Halldór Guðmundsson verður gestur Leslyndis 2. desember. Fá hafa fylgst jafn náið með íslensku bókmenntalífi og hann, hvort sem er sem höfundur, útgefandi, gagnrýnandi eða stjórnandi á vettvangi menningar og lista. Um áratugaskeið hefur hann verið virkur í umræðunni um menningu og bókmenntir hér á landi og hefur tekið þátt í að kynna íslenskar bókmenntir út fyrir landsteinana.
Halldór hefur skrifað fjölda bóka, þar á meðal margverðlaunaða ævisögu Halldórs Laxness. Hann hefur starfað hjá helstu bókaútgáfum landsins, komið að útgáfu og kynningu ótal verka og hefur gegnt veigamiklum störfum í íslensku menningarlífi. Þetta haust er hann að senda frá sér persónulega bókmenntasögu: Líf í bókum - íslenskar bókmenntir í þúsund ár.
---
Leslyndi hverfist um yndislestur og uppáhaldsbækur. Þjóðþekktir bókaunnendur stíga á stokk og deila eftirlætishöfundum og bókakveikjum með gestum. Ævintýri og ástarsögur, dagbækur og draumráðningar, sígildar sögur og samtímaverk; orðið er frjálst.
Viðburðaröðin hefur notið mikilla vinsælda og skapað sér fastan sess undanfarin misseri, þegar fólk flykkist að til að sjá hina ýmsu rithöfunda deila með okkur sínum uppáhaldsbókum.
Aðgangur er ókeypis og öll eru hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir.
Viðburðurinn er styrktur af menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar.
Advertisement

Event venue

Bókasafn Kópavogs, Hamraborg 6A,Kópavogur, Kopavogur, Iceland

Tickets
Concerts, fests, parties, meetups — all the happenings, one place.

Discover more events by tag

Ask AI if this event suits you

Keep the plans coming

More events in Kopavogur

Kopavogur is happening.

See everything else that’s on — concerts, markets, comedy and more.