Advertisement
Hrafnablót fagnar útgáfu fyrstu breiðskífu sinnar, Guðlaugar sögu, í Tónabíói þann 26. nóvember. Platan verður flutt í heild sinni, auk nokkurra nýrra laga. Drungi og Fortíð verða sérstakir gestir!Hrafnablót spilar göldrum þrunginn þjóðlagamálm þar sem þung riff og þjóðleg áhrif mætast. Sveitin var stofnuð árið 2024 og sækir innblástur í íslenska galdrasögu, þjóðsögur og Íslendingasögur.
Guðlaugar saga er 48 mínútna heildarverk sem segir sögu Guðlaugar, ungrar konu sem fer á djammið í Reykjavík. Þar dregur dularfull dís hana inn í fornt helgihald og þegar hún vaknar á ný er hún stödd á vígvelli á landnámsöld með ekkert meðferðis nema staka rafbyssu. Guðlaug lendir í höndum stríðandi fylkinga og er flutt vestur á firði. Þar kemst hún fljótt að því að sjarmi hennar og óvænt staða í þessum framandi heimi veita henni meiri áhrif en hún hefði getað ímyndað sér.
Þessa sögu flytjum við frá upphafi til enda í Tónabíói. Við hlökkum til að deila henni með ykkur og fagna útgáfunni með Drunga og Fortíð!
Platan kemur út 11. september á helstu streymisveitum, geisladiski og vínyl. Hún var hljóðblönduð af Helga Durhuus hjá Stúdíó Helvíti og hljómjöfnuð af Lasse Lammert, sem hefur meðal annars unnið með Alestorm, Gloryhammer og Wind Rose.
Dyrnar opna klukkan 19:00
20:00 Drungi
21:00 Fortíð
22:00 Hrafnablót
Miðinn kostar 3.990 kr. og miðasala fer fram hér:
https://tix.is/event/22293
EN:
Hrafnablót celebrates the release of its debut album, Guðlaugar saga, at Tónabíó on November 26. We’ll perform the album in full, alongside a few new songs, with Drungi and Fortíð joining us as special guests!
Formed in 2024, Hrafnablót plays sorcerous folk metal, bringing together heavy riffs and folk influences rooted in Icelandic witchcraft, folklore and the Icelandic sagas.
Guðlaugar saga is a 48-minute concept album about a young woman whose night out in Reykjavík lands her on a battlefield in Iceland’s settlement era, armed with nothing but a taser. Drawn into an ancient ritual by a mysterious spirit, Guðlaug finds herself caught between warring factions in an unfamiliar world. There, her charm and unexpected position give her more influence than she could have imagined.
We’ll bring that story to the stage from beginning to end at Tónabíó. Come hear it unfold and celebrate the release with us, Drungi and Fortíð!
The album arrives on September 11 on major streaming platforms, CD and vinyl. It was mixed by Helgi Durhuus at Stúdíó Helvíti and mastered by Lasse Lammert, whose credits include Alestorm, Gloryhammer and Wind Rose.
Doors 19:00
Drungi 20:00
Fortíð 21:00
Hrafnablót 22:00
Tickets here, for 3.990 kr.
https://tix.is/event/22293
Advertisement
Event venue
RVK Bruggfélag Tónabíó, Skipholt 33, 105 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjav, Iceland
Tickets