Advertisement
Í tilefni útgáfu bókarinnar Eldur í öskunni leynist eftir Margréti Höskuldsdóttur verður blásið til útgáfuhófs í Bókabúð Forlagsins þriðjudaginn 20. október kl. 17:00.Höfundur les upp og áritar bækur, léttar veitingar verða í boði og bókin á sérstöku útgáfutilboði.
Við hlökkum til að sjá ykkur!
Um bókina:
Eldgosið í Heimaey árið 1973 er í algleymingi og þrjú systkini frá Eyjum eru send í fóstur vestur á firði. Fimmtíu árum síðar snýr eitt þeirra aftur og um svipað leyti finnast mannabein á Dynjandisheiði. Bergur er settur í málið en nýtur aðstoðar Rögnu á bak við tjöldin. Hverjum tilheyra beinin og af hverju virðist eldri kynslóðin í lögreglunni á Ísafirði treg til að rannsaka málið af fullum þunga?
Eldur í öskunni leynist er fjórða bók Margrétar S. Höskuldsdóttur og þriðja sagan um lögregluteymið Rögnu og Berg. Önnur sagan, Lokar augum blám, hlaut Blóðdropann, íslensku glæpasagnaverðlaunin árið 2025.
Advertisement
Event venue
Fiskislóð 39, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Fiskislóð 39, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets