Advertisement
Viðskiptaráð kynnir nýja úttekt á umhverfi fjölmiðla á Íslandi miðvikudaginn 5. mars á Vinnustofu Kjarval, á 2. hæð. Viðburðurinn hefst kl. 16:30. Úttektin sem ber titilinn „Afsakið hlé: umhverfi fjölmiðla á Íslandi“ kemur út samdægurs og fjallar um samkeppnisstöðu og framtíðarhorfur fjölmiðla á Íslandi en einnig hlutverk og umsvif ríkisins á þeim markaði.Að lokinni kynningu á úttekt Viðskiptaráðs fara fram pallborðsumræður með þrautreyndu fjölmiðlafólki
- Helga Arnardóttir, fjölmiðla- og dagskrágerðarkona
- Kolbeinn Tumi Daðason, fréttastjóri á Stöð 2, Vísi & Bylgjunni
- Stefán Einar Stefánsson, blaðamaður á Morgunblaðinu
Viðburðurinn er opinn öllum og fer skráning fram hér: https://vi.is/fjolmidlavidburdur-2025
Boðið verður upp á léttar veitingar að loknum umræðum.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Vinnustofa Kjarvals, Austurstræti 10, 101 Reykjavíkurborg, Ísland,Reykjavík, Iceland