Á þessu 6 vikna námskeiði fyrir karla sameinum við náttúruna, einföld verkefni og samtal til að skapa rými fyrir ró, styrk og aukið jafnvægi í daglegu lífi.
? Fyrir karla sem vilja stíga út úr hraða dagsins, tengjast náttúrunni og taka þátt í verkefnum sem efla bæði líkama, hug og samfélag.
? Um námskeiðið
Í gegnum verkefni í náttúrunni vinnum við með aðferðir úr iðjuþjálfun og náttúrumeðferð til að styrkja taugakerfið, auka seiglu og styðja við heilbrigðari lífsstíl.
Áhersla er lögð á að skapa rými þar sem karlar geta hist, unnið saman og átt heiðarlegt samtal.
? Hver tími inniheldur:
• Verkefni í náttúrunni (t.d. tálgun, byggja upp eld, skýli o.fl.)
• Hreyfingu og tengingu við líkamann
• Fræðslu um streitu, jafnvægi og líðan út frá karllægum hlutverkum
• Samtal og ígrundun í hópi
? Við hittumst einu sinni í viku í sex vikur í náttúru í nærumhverfi höfuðborgarsvæðis.
? Leiðbeinendur
Alda Pálsdóttir og Harpa Ýr Karínardóttir
Áfalla- og tengslamiðaðir iðjuþjálfar og sérfræðingar í náttúrumeðferð.
Takmarkaður fjöldi þátttakenda til að tryggja gott rými fyrir hópinn.
Event venue
Sundagarðar 2, 2. hæð, 104 Reykjavík, Iceland, Sundagarðar 2, 104 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjav, Iceland
Tickets