Advertisement
Gervigreindin er komin inn í markaðsstarfið. Spurningin er bara hver nýtir hana best og hver situr eftir.Fyrsta ör-kveikja haustsins fer fram hjá Lava Show, þar sem alvöru hraun rennur. Við verðum þar í klukkutíma og förum ekki yfir neinar glærur um fjarlæga framtíð. Í staðinn eigum við hreinskilið samtal fólks í ferðaþjónustu sem er að prófa sig áfram, gera mistök og ná árangri.
Við kíkjum undir húddið:
– Hvaða AI-tól skila raunverulegum árangri í markaðsstarfi?
– Hvar sparar gervigreindin tíma og hvar klikkar hún?
– Hvernig höldum við rödd vörumerkisins þegar vélin skrifar með okkur?
– Hvað erum við tilbúin að deila hvert með öðru og afhverju er það mikilvægt?
Þar sem hugmyndin spratt frá Ragnhildi Ágústsdóttir stofnanda Lava Show þá liggur beinast við að kveikja fyrsta neistann þar.
Miðvikudagur 7. október
Húsið opnar kl. 8:30 með rjúkandi kaffi
Kveikjan sjálf er frá kl. 9 til 10
Aðeins 30 sæti eru í boði og klasafélagar ganga fyrir. Mikilvægt er að skrá sig á hlekknum hér að ofan.
Advertisement
Event venue
Lava Show, Reykjav, Iceland
Tickets