Advertisement
Jazzklúbburinn Múlinn heldur áfram með vordadagskrá sína með spennandi tónleikum miðvikudaginn 4. mars kl. 20:00 á Björtuloftum, Hörpu. Á tónleikunum kemur fram kvartett píanóleikarans Sunnu Gunnlaugs sem skartar hinni frábæru söngkonu Marínu Ósk sem flytur frumsamin lög í bland við gömul lög eftir íslenskar konur í nýjum búningi. Sunna gaf út albúmið "Ástin, bjartsýnin og andskotans blaðrið í fólkinu” 2024 með tónsmíðum sínum við ljóð Jóns úr Vör. Albúmið var tilnefnt til Íslensku Tónlistarverðlaunanan og Marína Ósk var valin söngkona ársins. Albúmið hlaut góðar móttökur erlendis og var m.a. albúm vikunnar hjá þýska útvarpinu. Sunna hefur einnig verið að dusta ryk af gömlum lögum eftir íslenskar konur og fella þau inn í dagskrá kvartettsins. Tónlist kvartettsins er best lýst sem góðri blöndu af hugljúfum ballöðum sem og dillandi & grípandi latínópusum.Love & optimism /Sunna Gunnlaugs Quartet
Pianist, Sunna Gunnlaugs, presents a quartet with the fabulous vocalist Marína Ósk. Their 2024 release “Ástin, bjartsýnin & andskotans blaðrið í fólkinu” was nominated for the Icelandic Music Awards and Marína chosen vocalist of the year. The album received kudos abroad and was featured as album of the week on German radio. The music is best described as heartwarming ballads and joyful latin infused songs.
Marína Ósk Þórólfsdóttir, vocals
Sunna Gunnlaugs, piano
Nico Moreaux, bass
Scott McLemore, drums
The concert starts at 20 @ Björtuloft, Harpa Concert House. Tickets ISK 4900.
Spennandi vordagskrá Múlans heldur síðan áfram á miðvikudagskvöldum fram í lok maí. Múlinn er að hefja sitt 29. starfsár en hann er samstarfsverkefni Félags Íslenskra Hljómlistamanna (FÍH) og Jazzvakningar. Klúbburinn heitir í höfuðið á Jóni Múla Árnasyni sem jafnframt var heiðursfélagi og verndari Múlans.
Múlinn er styrktur af Reykjavíkurborg, Tónlistarsjóði og SUT sjóðnum og er í samstarfi við Heimstónlistarklúbbinn og Hörpu.
Jazzklúbburinn Múlinn er handhafi Íslensku tónlistarverðalaunanna.
Tónleikar Múlans fara fram á miðvikudagskvöldum klukkan 20:00 á Björtuloftum, fimmtu hæð Hörpu. Miðaverð kr. 4900 og 3600 fyrir nemendur og eldri borgara, miðar fást í miðasölu Hörpu
Advertisement
Event Venue
Harpa Concert Hall and Conference Centre, 101 Reykjavík, Iceland, Austurbakki 2, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.











