Afreksmenning og stjórnun – hvernig ýtum við undir árangur og öfluga menningu?

Thu Mar 05 2026 at 03:00 pm to 04:30 pm UTC+00:00

Tungumálamiðstöð Háskóla Íslands | Reykjavík

Menntav\u00edsindasvi\u00f0 H\u00cd
Publisher/HostMenntavísindasvið HÍ
Afreksmenning og stj\u00f3rnun \u2013 hvernig \u00fdtum vi\u00f0 undir \u00e1rangur og \u00f6fluga menningu?
Advertisement
Þórir Hergeirsson, handknattleiksþjálfari og fyrirlesari flytur erindið, Afreksmenning og stjórnun – hvernig ýtum við undir árangur og öfluga menningu? fimmtudaginn 5. mars kl. 15-16.30 í Auðarsal í Veröld húsi Vigdísar.
Erindið er hluti af fyrirlestraröð Menntavísindasviðs - EFST Á BAUGI og unnin í samstarfi við námsbraut íþrótta- og heilsufræði á Menntavísindasviði.
Fyrirlesturinn verður einnig í streymi.
Afreksmenning verður ekki til af tilviljun. Hún er mótuð með skýrum væntingum, góðri stjórnun og menningu sem styður við árangur. Í þessum viðburði fyrirlestraraðar Menntavísindasviðs, EFST Á BAUGI 2026, fjallar Þórir Hergeirsson, margverðlaunaður handknattleiksþjálfari um mikilvæga þætti afreksstjórnunar og hvernig hægt er að byggja upp umhverfi þar sem fólk nýtur styrkleika sinna, teymi vinna vel saman og markmið verða að sameiginlegri skuldbindingu.
Í erindinu fjallar Þórir meðal annars um jákvæða mannsýn sem grunn að trausti og framþróun, styrkleikamiðaða nálgun sem eykur frumkvæði og frammistöðu, heildræna nálgun á árangur, samskipti og vinnuumhverfi, teymisvinnu og samspil hlutverka og ábyrgðar, gildi og menningu sem leiðarljós í daglegum ákvörðunum.
Viðburðurinn hentar íþróttafólki, þjálfurum, íþróttakennurum, forystufólki í íþróttahreyfingunni, stjórnendum, teymisstjórumog öllum sem vilja efla árangur með skýrari stjórnun og sterkari menningu.
Dagskrá:
Opnunarávarp - Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti Menntavísindasviðs
Kynning á aðalfyrirlesara - Þórdís Lilja Gísladóttir, deildarforseti heilsueflingar, íþrótta og tómstunda
Afreksmenning: stjórnun og vinna - Þórir Hergeirsson, handknattleiksþjálfari og fyrrverandi þjálfari norska kvennalandsliðsins

Spurningar og umræður - Örn Ólafsson, námsbrautarformaður íþrótta- og heilsufræði, stýrir
Viðburðurinn verður í beinu streymi. Boðið verður upp á léttar veitingar í lokin.
Verið öll velkomin!
Nánari upplýsingar um Efst á baugi, fyrirlestraröð MVS hér
--
Ágrip:
Þórir Hergeirsson fæddist árið 1964 á Selfossi og hefur verið búsettur á Kleppe á Jæren í Noregi frá árinu 1997. Hann lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautarskóla Suðurlands árið 1985, á íþróttabraut og í húsasmíði, og ári síðar sveinsprófi í húsasmíði. Árið 1986 flutti Þórir til Óslóar og hóf nám við Norges Idrettshøgskole. Þar lauk hann meistaragráðu (master) með sérhæfingu í íþróttasálfræði og þjálfun (coaching), sem mótaði faglega nálgun hans í afreksíþróttum til framtíðar. Þórir hefur starfað sem handknattleiksþjálfari frá árinu 1980, bæði með karla- og kvennalið, hjá félögum á borð við UMF Selfoss, Fredensborg/Ski, Elverum Handball, Gjerpen Handball og Nærbö. Hann hóf störf hjá Norska Handknattleikssambandinu árið 1994 og starfaði þar fram til ársloka 2024, meðal annars sem þjálfari yngri landsliða og síðar A-landsliðs kvenna. Á þeim tíma stýrði hann A-landsliði Noregs í 20 stórmótum á EM, HM og Ólympíuleikum og náði lið hans 17 verðlaunum á árunum 2009 til 2024, þar af 10 gullverðlaunum. Frá árinu 2025 hefur Þórir sinnt fjölbreyttum verkefnum, meðal annars sem þjálfari yngri landsliða og síðar A-landsliðs kvenna. Á þeim tíma stýrði hann A-landsliði Noregs í 20 stórmótum á EM, HM og Ólympíuleikum og náði lið hans 17 verðlaunum á árunum 2009 til 2024, þar af 10 gullverðlaunum. Frá árinu 2025 hefur Þórir sinnt fjölbreyttum verkefnum, meðal annars ráðgjöf og fyrirlestrum, auk hlutastarfa fyrir Handknattleikssamband Íslands og Noregs.
Advertisement

Event Venue

Tungumálamiðstöð Háskóla Íslands, Brynjólfsgata 1, 107 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland

Tickets

Icon
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.

Ask AI if this event suits you:

More Events in Reykjavík

Dead Air
Wed, 04 Mar at 08:00 pm Dead Air

Tjarnarbíó (Reykjavík, Iceland)

Huglei\u00f0slukv\u00f6ld me\u00f0 Lilju - tenging vi\u00f0 lj\u00f3sverur \u00ed 100% t\u00e6ru lj\u00f3si
Wed, 04 Mar at 08:00 pm Hugleiðslukvöld með Lilju - tenging við ljósverur í 100% tæru ljósi

Máshólar 1, 111 Reykjavík, Iceland

\u200bH\u00e1degishl\u00e9 sem skiptir m\u00e1li!
Thu, 05 Mar at 12:00 pm ​Hádegishlé sem skiptir máli!

IÐNÓ

\u00c1rsfundur Erasmus+ 2026 - F\u00e6rni til framt\u00ed\u00f0ar
Thu, 05 Mar at 12:15 pm Ársfundur Erasmus+ 2026 - Færni til framtíðar

Tækniskólinn - Háteigsvegur

I\u00f0n\u00feing 2026 - Finnum samhlj\u00f3minn
Thu, 05 Mar at 02:00 pm Iðnþing 2026 - Finnum samhljóminn

Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre

H\u00f6nnunarf\u00f6gnu\u00f0ur Rammager\u00f0arinnar
Thu, 05 Mar at 04:00 pm Hönnunarfögnuður Rammagerðarinnar

Skólavörðustígur 12

B\u00faum til draumagar\u00f0 \u00far LEGO \/ Let\u2019s Make our Dream Garden out of LEGO
Thu, 05 Mar at 04:00 pm Búum til draumagarð úr LEGO / Let’s Make our Dream Garden out of LEGO

Borgarbókasafnið Grófinni - The Reykjavik City Library Grófin

Handb\u00f3k um hafi\u00f0 ~ \u00fatg\u00e1fuh\u00f3f\ud83c\udf0a
Thu, 05 Mar at 04:00 pm Handbók um hafið ~ útgáfuhóf🌊

Norræna húsið The Nordic House

Strip Lab Life Drawing at Kabarett
Thu, 05 Mar at 07:00 pm Strip Lab Life Drawing at Kabarett

Kabarett

Tom\u00e1\u0161 Hanus & Stef\u00e1n Ragnar
Thu, 05 Mar at 07:30 pm Tomáš Hanus & Stefán Ragnar

Eldborg, Harpa, Austurbakka 2

T\u00f6lum um r\u00e9ttl\u00e6ti \u00ed skattkerfinu - Stef\u00e1n \u00d3lafsson
Thu, 05 Mar at 08:00 pm Tölum um réttlæti í skattkerfinu - Stefán Ólafsson

Hverfisgata 105, 101 Reykjavík, Iceland

Reykjavík is Happening!

Never miss your favorite happenings again!

Explore Reykjavík Events