Advertisement
Húsið opnar kl 16 með kaffi og meððí og kl 16:15 verður stutt kynning á bókinni.
Handbók um hafið er fræðslubók ætluð ungu fólki á aldrinum 13-30 ára. Kaflarnir fjalla um líffræði hafsins við Ísland, veiðar og veiðistjórnun, sjávarsamfélög, sjókvíaeldi og verndarsvæði í hafi svo fátt eitt sé nefnt. Bókin er rituð á skiljanlegu máli en ávallt er vísað til vísindalegra heimilda. Verkefnið var styrkt af Erasmus+ en hluti verkefnisins var að halda vinnustofur fyrir ungt fólk um hafið sem fóru fram síðasta sumar. Útgáfa Handbókar um hafið er því eins konar uppskera úr þessu verkefni.
Við hlökkum til að taka á móti ykkur og deila með ykkur afrakstri vinnu okkar hjá Ungum umhverfissinnum.
Advertisement
Event Venue
Norræna húsið The Nordic House, Sæmundargata 11,Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.











