Advertisement
Laugardaginn 28. des frá kl. 11 - 17 verðum við með Áramótagrímusmiðju í Höfuðstöðinni. Við málum á grímurnar með málningu og skreytum með steinum og fjöðrum. Verð per grímu er 1.990kr.
Hentar öllum aldurshópum.
Kaffihúsið, útisvæðið og sýningin Chromo Sapiens verða á sínum stað.
--
Höfuðstöðin er lista- og menningarhús í gömlu kartöflugeymslunum í Elliðaárdalnum. Þar má finna kaffihús, bar, gjafavöruverslun og sýninguna Chromo Sapiens eftir Hrafnhildi Arnardóttur / Shoplifter. Opið er virka daga frá kl. 12 - 18 og helgar frá kl. 11 - 17. Hægt er að leigja út Höfuðstöðina fyrir einkaviðburði og það eru skemmtilegar listasmiðjur fyrir börn og fjölskyldur alla laugardaga frá kl. 11 - 17 og á völdum frídögum.
www.hofudstodin.com
www.instagram.com/hofudstodin/
www.facebook.com/hofudstodin/
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Rafstöðvarvegur 1a, 110 Reykjavík, Iceland, Rafstöðvarvegur 1, 110 Reykjavíkurborg, Ísland,Reykjavík, Iceland