#StayHappening
Fri, 25 Sep, 2026 at 08:00 pm UTC+00:00

Við syngjum tvö - Óskar Pétursson & Diddú - Miðgarður Skagafirði

  • Menningarhúsið Miðgarður, Varmahlíð · Saudarkrokur
D\u00e6gurflugan Publisher / Host Dægurflugan
Share
Vi\u00f0 syngjum tv\u00f6 - \u00d3skar P\u00e9tursson & Didd\u00fa - Mi\u00f0gar\u00f0ur Skagafir\u00f0i
Advertisement
★ Forsala á póstlista Dægurflugunnar 7. júlí og TIX 8. júlí og
Skráning á póstlista Dægurflugunnar:
👉 https://tinyurl.com/Daegurflugan
★ Almenn miðasala hefst 9. júlí kl 10:00 á tix.is
Tvær af ástsælustu söngröddum þjóðarinnar leiða nú saman krafta sína á tónleikunum Við syngjum tvö.
Óskar Pétursson og Diddú hafa hvort um sig átt einstakan feril og glatt landsmenn um áratugaskeið með söng sínum, hlýju og einstakri sviðsframkomu. Nú gefst fágætt tækifæri til að upplifa þau saman á sviði þar sem þau flytja lög af ýmsu tagi sem mörg skipa sérstakan sess í hjörtum okkar.
Á efnisskránni verða þeirra eftirlætis lög, þar á meðal íslenskar perlur, sígild dægurlög, dúettar og einsöngslög.
Léttur húmor og hlý stemmning hefur ávallt einkennt þau Óskar og Diddú og þeim verður ekki skotaskuld úr að krydda tónleikana með skemmtilegum sögum. Með þeim á sviði verður einvalalið hljóðfæraleikara undir stjórn Jóns Ólafssonar, sem skapar fallega umgjörð utan um þessar tvær einstöku raddir.
Við syngjum tvö eru tónleikar sem höfða til allra sem elska góða tónlist, fallegan söng og skemmtilegar sögur.
Tryggðu þér miða í tæka tíð – þetta eru tónleikar sem þú vilt ekki missa af.
Advertisement

Event venue

Menningarhúsið Miðgarður, Varmahlíð, Miðgarður, Miðgarður, 560 Sveitarfélagið Skagafjörður, Ísland, Saudarkrokur, Iceland

Tickets
Concerts, fests, parties, meetups — all the happenings, one place.

Ask AI if this event suits you

Keep the plans coming

More events in Saudarkrokur

Rjúpnafjör

Sat, 10 Oct at 12:00 pm Skotfélagið Markviss

Saudarkrokur is happening.

See everything else that’s on — concerts, markets, comedy and more.