Advertisement
María Sól Ingólfsdóttir, sópransöngkona, kemur fram í tónleikaröðinni Velkomin heim sunnudaginn 26. júlí klukkan 16. Tónleikaröðin er á vegum FÍT - klassískrar deildar FÍH í samstarfi við Hörpu. Meðleikari er Sævar Helgi Jóhannsson.Tónleikarnir fara fram í Hörpuhorni, annarri hæð Hörpu. Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin.
---
María Sól Ingólfsdóttir lauk nýverið meistaraprófi í söng frá Hochschule für Musik Saar en áður hafði hún lokið bakkalárgráðu í söng frá Listaháskóla Íslands árið 2019 og framhaldsstigsprófi frá Söngskólanum í Reykjavík árið 2016. Hún hefur einnig seinustu ár verið nemandi Haus of Shmizzay í New York.
María Sól hefur komið fram í fjölmörgum tónleikum, óperuuppfærslum og tónlistarhátíðum á Íslandi. Hún hlaut Grímuverðlaunin sem söngvari ársins árið 2021 á Íslensku sviðslistaverðlaununum fyrir hlutverk sitt í verkinu Ekkert er sorglegra en manneskjan eftir Adolf Smára Unnarsson og Friðrik Margrétar-Guðmundsson og einnig verðlaun úr styrktarsjóði Halldórs Hansen fyrir framúrskarandi tónlistarnema árið 2019. María Sól er virkur þátttakandi í menningarlífi Saarlands í Þýskalandi þar sem hún hefur verið búsett seinustu ár. Hún hefur sungið á öllum helstu tónlistarhátíðum í og við Saarbrücken, sem og við óperuna í Saarländische Staatstheater, og var þar að auki valin fulltrúi Richard Wagner-félagsins í Saarlandi á Bayreuth
Festspiele-óperuhátíðina árið 2024.
Meðal verkefna framundan er flutningur á Gurrelieder eftir A. Schönberg í Schönberg Center í Vín í sumar, tónleikar á tónlistarhátíðinni Musikfestspiele Saar í Schengen og hlutverk Konstanze í Brottnáminu úr kvennabúrinu eftir W.A. Mozart í Bad Orb.
María Sól Ingólfsdóttir heillar með kraftmikilli rödd og töfrandi framkomu. Hún trúir því að tónlist sé galdur.
---
María Sól Ingólfsdóttir recently completed a Master's degree in singing from the Hochschule für Musik Saar. She previously graduated with a Bachelor's degree in singing from the Iceland Academy of the Arts in 2019 and obtained an advanced diploma from the Reykjavík College of Singing in 2016. She has also been a
member of Haus of Shmizzays singing studio in New York for the past few years.
Maria Sól has performed in numerous concerts, opera productions and music festivals in Iceland. She received the Gríma Award for Singer of the Year in 2021 at the Icelandic Performing Arts Awards for her role in the work Ekkert er sorglegra en manneskjan by Adolf Smári Unnarsson and Friðrik Margrétar -Guðmundsson and also the Halldór Hansen Foundation Award for outstanding music students in 2019.
María Sól is an active participant in the cultural life of Saarland in Germany, where she has been based for the past few years. She has sung at multiple music festivals in and around Saarbrücken, as well as at the Saarländische Staatstheater opera house, and was also selected as the representative of the Richard Wagner Society
of Saarland for the Bayreuth Festspiele opera festival in 2024.
Upcoming engagements include a performance of Gurrelieder by A. Schönberg at the Schönberg Center in Vienna this summer, concerts at the Musikfestspiele Saar music festival in Schengen, and the role of Konstanze in W.A. Mozart's Die Entführung aus dem Serail in Bad Orb.
María Sól Ingólfsdóttir captivates with a powerful voice and an enchanting presence. She believes that music is magic.
Advertisement
Event venue
Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre, Austurbakki 2, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjav, Iceland
Tickets