Advertisement
Uppspretta Suðurlands – Hátíð vaxtar og verðmætasköpunarFyrsti heildstæði viðburður sunnlensks atvinnulífs, nýsköpunar og frumkvöðla!
Þann 6. og 7. nóvember 2026 breytist Horseday-höllin í Ölfusi í hátíð sem enginn Sunnlendingur – né áhugafólk um framtíð atvinnulífs – má láta fram hjá sér fara.
Á Uppsprettunni verður kastljósinu beint að þeim gríðarlega krafti, hugviti og tækifærum sem búa á Suðurlandi. Hátíðin sameinar ráðstefnu, sýningarsvæði og tengslamyndun þar sem frumkvöðlar, starfandi fyrirtæki, fjárfestar, sveitarfélög og almenningur koma saman.
Drög að DAGSKRÁ
📌 Föstudagur 6. nóvember: Fagdagur & ráðstefna
11:00 – Lokaviðburður Startup Landið: Teymi úr viðskiptahraðlinum Startup Landið stíga á svið og sín verkefni.
12:00 – Sýningarsvæði opnar: Kynntu þér sunnlensk fyrirtæki og nýsköpunarverkefni.
13:00 – Nýsköpunarstefna Suðurlands: Formleg kynning á fyrstu nýsköpunarstefnu landshlutans.
14:00 – Nýsköpun í dreifðum byggðum: Erindi og umræður um sóknarmöguleika landsbyggðarinnar.
14:30 – Nýsköpun innan starfandi fyrirtækja: Hvernig búa rótgróin fyrirtæki til nýjar vörur og verðmæti?
15:00 – Happy Hour & Tengslamyndun: Óformlegur og skemmtilegur vettvangur til að stækka tengslanetið.
📌 Laugardagur 7. nóvember: Opin hátíð fyrir almenning
11:00–16:00 – Sýningarsvæði opið öllum: Svæðið opið fyrir íbúa Suðurlands og gesti! Tilvalið fyrir alla fjölskylduna til að koma, kynnast starfsemi sunnlenskra fyrirtækja af eigin raun, prófa tæki, tól og aðrar lausnir og sjá hvað er um að vera í sunnlensku atvinnulífi.
📍 Hvar: Horseday-höllin, Ölfusi
🗓️ Hvenær: 6.–7. nóvember 2026
🎟️ Aðgangur: Ókeypis og öll velkomin!
Nánar á https://uppspretta.sass.is/
Saman eflum við sunnlenskt atvinnulíf – sjáumst!
Advertisement
Event venue
HorseDay Höllin Ingólfshvoli, Fakasel, 816 Sveitarfélagið Ölfus, Ísland, Selfoss, Iceland
Tickets
Discover more events by tag
Entrepreneurship in SelfossConferences in SelfossExhibitions in SelfossStartup in SelfossBusiness in SelfossLeadership in Selfoss