Advertisement
Bíóklúbbur félagsfræðinnar stendur fyrir sérstakri umræðusýningu á þýsk/írönsku kvikmyndinni “The Seed of the Sacred Fig“ í samstarfi við Bíó Paradís. Myndin, sem er tilnefnd sem besta erlenda kvikmyndin fyrir Óskarsverðlaunin 2025, byggir á raunverulegu sögusviði í Tehran í Íran og tekur fyrir samfélag sem stendur á tímamótum sem einkennast af vaxandi gagnrýni og andófi ungu kynslóðarinngar gagnvart hefðbundum hefðum og gildum rótgróins guðveldis, sem og hvernig slíku andófi er mætt.
Myndin er hörkuspennandi en vekur auk þess upp fjölbreyttar spurningar um samfélagsbreytingar, sem og áhrif tíðaranda á hugmyndir, gildi, og hversdagsvenjur sem fólk tekur öllu jafna sem gefnum.
Um er að ræða opnunarviðburð Bíóklúbbs félagsfræðinnar (sem haldið er úti af fræðafólki í félagsfræði), og hefur það að markmiði að:
- skapa vettvang fyrir samtal um samfélagið með aðstoð kvikmynda
- bjóða fólki sem hefur áhuga á lífinu og tilverunnni að eiga samverustund í almannarýminu – og skapa félagslega töfra með öðrum
- vekja athygli á mikilvægi menningarlegra stofnana eins og kvikmyndahúsa fyrir einstaklinga og samfélag
Fyrir myndina mun Saeed Shamshiran, íranskur doktorsnemi í félagsfræði, flytja stutt erindi um stöðu mála í Íran sem rammar inn sögusvið myndarinnar (erindið verður á ensku). Að lokinni sýningu myndarinnar eru gestir hvattir til að staldra við og ræða myndina og heimsmálin í góðum félagsskap fólks sem hefur áhuga á að greina lífið og tilveruna með aðstoð kvikmyndarinnar.
📅 Tími: Mánudagur 3. mars kl. 19:00�
📍 Staður: Bíó Paradís�
🎬 Texti: Enskur
Öll velkomin!
Verð: 2.190. 25% afsláttur af miðaverði fyrir námsfólk, eldri borgara og öryrkja - afsláttur eingöngu í boði við kaup í miðasölu.
Sjá stiklu hér: https://bioparadis.is/mynd/404_the-seed-of-the-sacred-fig/
———————————
English
Sociological Cinema Society presents a special screening of the German-Iranian film The Seed of the Sacred Fig in collaboration with Bíó Paradís.
Nominated for Best International Feature at the 2025 Academy Awards, the film is set in contemporary Iran and portrays a society at a crossroads. Blending fictional narrative with real footage from the 2022–2023 protests—brutally suppressed by Iranian authorities—it offers a powerful and thought-provoking cinematic experience.
This screening marks the launch of the Sociological Cinema Society, founded by Icelandic scholars. The society aims to:
* Create a platform for critical discussions on society through film.
* Encourage meaningful and enlightening social engagement.
* Highlight the vital role of cultural institutions like cinemas in both individual and societal well-being.
*
Before the screening, Saeed Shamshirian, an Iranian doctoral student in sociology, will provide a brief introduction (in English), framing the historical context of the film. Afterward, guests are invited to participate in informal discussions about the film and its broader implications in a welcoming atmosphere.
📅 Date & Time: Monday, March 3, at 19:00�
📍 Location: Bíó Paradís�
🎬 Subtitles: English
Everyone is welcome!
Price: 2.190 kr. 25% discount of ticket price for students, disable and senior citizens - discount only available for purchases in ticket booth.
See trailer: https://bioparadis.is/mynd/404_the-seed-of-the-sacred-fig/
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Hverfisgata 54, 101 Reykjavík, Iceland, Hverfisgata 54, 101 Reykjavíkurborg, Ísland,Reykjavík, Iceland
Tickets