#StayHappening
Thu, 10 Jun, 2027 at 07:30 pm UTC+00:00

Tan Dun & Stravinskíj

  • Eldborg, Harpa, Austurbakka 2 · Reykjavík
Sinf\u00f3n\u00eduhlj\u00f3msveit \u00cdslands Publisher / Host Sinfóníuhljómsveit Íslands
Share
Tan Dun & Stravinsk\u00edj
Advertisement
Tan Dun er eitt af þekktustu tónskáldum samtímans og er hvað þekktastur fyrir að hafa náð að tengja saman kínverska og vestræna tónlistarhefð á listilegan máta. Hann er þekktur fyrir sinfónísk verk sín jafnt sem kvikmyndatónlist og hefur hlotið fjölda viðurkenninga og verðlauna fyrir verk sín, þ. á m., Grammy-, BAFTA- og Óskarsverðlaunin fyrir tónlist sína við kvikmyndina Crouching Tiger, Hidden Dragon. Hann er góðvildarsendiherra UNESCO á sviði vatnaverndar, enda er vatn og önnur frumefni afar algengt yrkisefni í verkum hans. Leiðari pákudeildar Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Soraya Nayyar, mun leika hinn einstaka vatns-konsert eftir Tan Dun, þar sem vatnið er oft og tíðum aðal einleikshljóðfærið.
Á tónleikunum verða einnig flutt tvö verk eftir Stravinskíj í fyrsta sinn á Íslandi: Æskuverkið Flugeldar, sem vakti verðskuldaða athygli á tónskáldinu unga unga þegar verkið var frumflutt og tónaljóðið Söngur næturgalans, sem Stravinskíj vann upp úr óperu sinni Næturgalanum frá 1914. Andi Vorblótsins svífur yfir vötnunum í þessu litskrúðuga og fjörmikla tónaljóði sem segir söguna af því hvernig söngur næturgalans bræddi hjarta keisarans í Kína.
Efnisskrá
Ígor Stravinskíj: Feu d'artifice / Flugeldar
Tan Dun: Water Concerto, konsert fyrir vatnsslagverk og hljómsveit
Ígor Stravinskíj: Le Chant du rossignol / Söngur Næturgalans
Tan Dun: Passacaglia: Secrets of Winds and Birds
Hljómsveitarstjóri
Tan Dun
Einleikari
Soraya Nayyar, slagverk
//
Tan Dun is one of the most renowned composers of our time and is best known for having managed to artistically combine Eastern and Western musical traditions. He is known for his symphonic works as well as film music and has received numerous awards and recognitions for his work, including Grammy, BAFTA, and Academy Awards for his music for the film Crouching Tiger, Hidden Dragon. He is a UNESCO Goodwill Ambassador for Water Conservation, as water and other elements are very common motifs in his work. The principal timpanist of the Iceland Symphony Orchestra, Soraya Nayyar, will play the unique Water Concerto by Tan Dun, in which water is often the main solo instrument.
The concert will also feature two works by Stravinsky performed for the first time in Iceland: The early work Fireworks, which brought deserved attention to the young composer when it was first performed, and the tone poem The Nightingale's Song, which Stravinsky adapted from his opera The Nightingale from 1914. The spirit of Rite of Spring is embodied in this colourful and lively tone poem that tells the story of how the nightingale's song melted the heart of the emperor in China.
Program
Igor Stravinsky: Feu d'artifice / Fireworks
Tan Dun: Water Concerto for Water Percussion and Orchestra
Igor Stravinsky: Le chant du rossignol / Song of the Nightingale
Tan Dun: Passacaglia: Secret of Winds and Birds
Conductor
Tan Dun
Soloist
Soraya Nayyar, percussion
Advertisement

Event venue

Eldborg, Harpa, Austurbakka 2, Austurbakki 2,Reykjavík, Iceland

Tickets
Concerts, fests, parties, meetups — all the happenings, one place.

Discover more events by tag

Ask AI if this event suits you